06.02.1946
Neðri deild: 64. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1360 í B-deild Alþingistíðinda. (2266)

149. mál, virkjun Sogsins

Frsm. (Sigurður Thoroddsen) :

Hv. 1. þm. Árn. gleymdi því, sem stendur í 1. gr. frv. til raforkulaga. Þar stendur m. a., með leyfi hæstv. forseta : „Þó er þeim, sem við gildistöku þessara laga eiga og reka raforkuver, sem eru stærri en 100 hestöfl, heimilt að reka þau áfram.“ Og ráðherra er heimilt að leyfa aukningu á þessum raforkuverum, allt að fullri fyrirhugaðri virkjun. Og sömuleiðis er ég ekki viss um, að hv. þm. skilji lögin frá 1933 rétt.