22.02.1946
Neðri deild: 73. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1364 í B-deild Alþingistíðinda. (2277)

149. mál, virkjun Sogsins

Samgmrh. (Emil Jónsson) :

Herra forseti. Ég vil aðeins taka undir tilmæli hv. 11. landsk. þm. um að fresta umr., svo að tækifæri gefist til þess að athuga brtt. hv. 1. þm. Árn. Ég tel brtt. vel koma til álita. Í 7. gr. frv. er gert ráð fyrir, að ríkið takist á hendur framhaldsvirkjum á Soginu, þegar hún er hálfnuð, nema samkomulag verði um aðra tilhögun við Reykjavíkurbæ. Ég tel enga ástæðu til þess að útiloka þennan möguleika, en teldi til bóta, að sá möguleiki væri fyrir hendi, að ríkið gæti gengið inn í virkjunina á fyrra stigi en um getur í frv. En ég vil ekki heldur útiloka, að Reykjavík geti haldið virkjuninni áfram.