21.03.1946
Neðri deild: 92. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1364 í B-deild Alþingistíðinda. (2279)

149. mál, virkjun Sogsins

Frsm. (Sigurður Thoroddsen) :

Herra forseti. 3. umr. um þetta mál var frestað eftir tilmælum hæstv. samgmrh.- og frsm. n., til þess að n. gæti athugað brtt., sem fram voru komnar frá hv. 1. þm. Árn, (JörB) og eru á þskj. 453. — N. hefur leitað umsagnar bæjarráðs um þessar till., og hefur nú borizt umsögn þess, sem, með leyfi hæstv. forseta, er á þessa leið: „Bæjarráð leggur móti því, að 1. og 2. brtt. tillögunnar verði samþ., en lætur afskiptalaust, hvort 3. tillagan verði samþykkt.“ — N. hefur síðan rætt um þessar till., og hefur þar ekki orðið samkomulag um þær, en meiri hl. n. hefur fallizt á að leggja það sama til og bæjarráð.

Skal ég svo ekki hafa fleiri orð um þetta að sinni.