21.03.1946
Neðri deild: 92. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1365 í B-deild Alþingistíðinda. (2281)
149. mál, virkjun Sogsins
Frsm. (Sigurður Thoroddsen) :
Ég vil taka það fram, að ég tel rétt, að 1. brtt. hv. þm. Árn. verði felld. Þess er skemmst að minnast, að þegar Ljósafoss var virkjaður og ríkið átti samkvæmi lögum rétt á að taka þátt í virkjuninni, taldi það sig ekki tilbúið að taka þátt í virkjuninni.
Ég held, að hv.1. þm. Árn. geti sparað sér allan ótta við það, að Reykjavík muni misnota sína aðstöðu og skammta sveitunum rafmagn, því að í 6. gr. stendur, að Reykjavíkurbæ sé skylt að láta í té raforku til almenningsnota utan Reykjavíkur. Verði þetta ekki hægt, er bænum skylt að auka virkjunina.