08.04.1946
Efri deild: 101. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1367 í B-deild Alþingistíðinda. (2295)

149. mál, virkjun Sogsins

Frsm. (Páll Hermannsson) :

Herra forseti. Þessi brtt. hefur borizt hingað nú á augnablikinu svo að segja, og ég segi fyrir mig, að ég er ekki fullkomlega búinn að átta mig á, hvaða verkanir hún getur haft. Iðnn. hefur lagt til, að frv. yrði samþ. óbreytt, en þar sem nýjar till. hafa nú borizt, væri betra, að n. fengi tækifæri til að ræða þær. Ég vil því mælast til, að forseti taki málið af dagskrá í dag.