13.04.1946
Neðri deild: 109. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1370 í B-deild Alþingistíðinda. (2308)

149. mál, virkjun Sogsins

Samgmrh. (Emil Jónsson) :

Herra forseti. Ég hef því miður ekki fylgzt hér með málum, en heyrði sitthvað úr ræðu hv. þm. V.-Sk. Hann áfellist auglýsingastarfsemi í sambandi við raflínulagningar um Suðurlandsundirlendið. Ég vil benda þessum hv. þm. á, að Framsókn hafði þetta í hendi sér á valdatíma sínum, en gerði ekkert í raforkumálum sveitanna og hefst ekki handa enn. Hvað viðkemur auglýsingum mínum, þá var hér um bréf að ræða, sem birt var í Ríkisútvarpinu og kom ekki frá mér, og ráðuneytið hefur ekki haldið á lofti neinni auglýsingastarfsemi í þessu efni.

Þm. lagði upp úr því, að taka ætti upp rafmagn á línurnar frá Selfossi. Þessi hv. þm. sagði einnig, að ekki væri næg orka í Soginu fyrir þessi héruð. Þetta er fjarri staðreyndum og er rangt, að ekki sé til nóg orka á næstunni fyrir Rvík og nágrenni. Það er fullkomlega nægilegt rafmagn fyrir hendi frá Soginu til þessara staða á Suðurlandsundirlendinu og það er sérstaklega mögulegt eftir þær ráðstafanir, sem Reykjavíkurbær hefur gert til úrbóta þangað til aukning Sogsvirkjunarinnar kemur til framkvæmda. Enn fremur er tryggt, að þessir staðir, sem rafveita Suðurlands á að ná til, hafa sama rétt til rafveitu og Reykjavíkurbær. Þess vegna er ekki um neinn afgang að ræða til þessara staða frá Soginu, heldur fullkomið jafnrétti á við Reykjavíkurbæ, sem er eigandi Sogsvirkjunarinnar. Hvernig hv. þm. ætlar að fá menn til að trúa því, að hér sé um auglýsingastarfsemi að ræða, fæ ég ekki skilið, því að rétturinn til rafmagnsins nær jafnt til allra.

Ég skal svo ekki tefja hv. d. frekar að svo stöddu með löngum ræðuhöldum um þetta mál. Hins vegar er ég alveg reiðubúinn til þess að tala við þessa hv. þm. um málið, hvenær sem þeir vilja, og hefði ég gaman af að heyra þá gera grein fyrir afstöðu sinni frammi fyrir kjósendum.