13.04.1946
Neðri deild: 109. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1382 í B-deild Alþingistíðinda. (2314)
149. mál, virkjun Sogsins
Samgmrh. (Emil Jónsson) :
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð, sem ég þarf að svara þessari aths. hv. þm. V.-Sk. Hann spurði: Greiðir Reykjavík hærra verð en kostnaðarverð fyrir sína raforku? Ég vil benda á það, að Sogsvirkjunin er sjálfstætt fyrirtæki, sem selur Reykjavík rafmagn, alveg eins og öðrum aðilum. Og ef Sogsvirkjunin selur íbúum Árnessýslu og Rangárvallasýslu rafmagnið nokkru hærra en við kostnaðarverði, sem má gera upp að 5%, selur fyrirtækið Reykvíkingum raforkuna sama verði, þannig að rafveitur þessara héraða og Reykjavík fá rafmagnið nákvæmlega á sama verði.
Þá spurði þessi hv. þm.: Er ekki hægt að verja fénu, sem ætlað er að leggja í varasjóð, öðruvísi en að leggja það í sjóð? Það má vera. En ef þarna er um að ræða greiðslu umfram kostnaðarverð, þegar allur kostnaður er tekinn til greina, þá sé ég ekki, að annað liggi fyrir en að þessi sjóður komi til skipta.
Þá sagði sami hv. þm., að 1000 kw. kæmi ekki til greina sem nægileg raforka fyrir þetta svæði fyrir austan, sem fyrirhugað er að leggja línur um og nefnt hefur verið, því að það væri a. m. k. 750 til 1000 wött, sem nauðsynlegt væri, að kæmi á mann. En venjulega mun ekki vera gert ráð fyrir nema 500 wöttum á mann, og þó í byrjun miklu minna, þannig að þessi tala 1000 kw., sem slegið er fram að lítt athuguðu máli, mun ekki vera fjarri sanni, og er það þá ekki nema 1/7 partur þeirrar orku, sem Reykjavíkurbær bætir við sig á næsta vetri.
Þá byrjaði hv. þm. V.-Sk. aftur á að stagast á því, að engar raunhæfar ráðstafanir hefðu verið gerðar í þessum málum, eftir að upplýst er, að tveir rafvirkjunarfræðingar hafa verið sendir til útlanda til að undirbúa málið og annar þeirra er kominn heim, sem báðum var falið að kaupa efni til þessarar veitu, og eftir að búið er að gefa þessum héruðum, sem um er að ræða, skuldbindingu frá ríkissjóði. Og þess vegna hafa þessir menn þar eystra aðgang að fé til rafveitnanna, hvaða ríkisstj. sem er við völd. Skal ég svo ekki elta lengtir ólar við ræðu þessa hv. þm., enda var ég búinn að svara mestu af því, sem fram kom í henni, áðan.