13.04.1946
Neðri deild: 109. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1383 í B-deild Alþingistíðinda. (2316)
149. mál, virkjun Sogsins
Jörundur Brynjólfsson:
Það eru aðeins örfá orð. Ég ætla aðeins að leiðrétta eitt atriði hjá hv. 11. landsk. þm., sem sennilega er fram komið hjá honum af misheyrn, frekar en af mishermi. Ég hef ekki látið það í ljós, að hann hafi farið með ósatt mál, það mun enginn hafa heyrt mig viðhafa þau ummæli, en það, sem ég gerði að umtalsefni, var afstaða hans til málsins, og það er sitt hvað. Hv. þm. V.-Húnv. drap á það, hvern þátt hann á í þessu máli, og þarf ég þess vegna ekki að fjölyrða um það. En það er aðeins eitt atriði í ræðu hæstv. samgmrh., sem ég kann ekki við, en það er um einhvern áróður austan fjalls gegn þessu máli. Ég frábið mig yfirleitt öllum getsökum í þeim efnum. En hafi verið minnzt á framkvæmd þessa máls, hef ég sagt frá því eins og ég vissi bezt, hvernig því líður. Ég hef ekki með einu orði lagt málinu neitt til spillis, eins og hæstv. samgmrh. getur getið sér til, því að ég vil vona, að hann væni mig ekki um áhugaleysi á því, að raforka fáist í mitt hérað og önnur héruð þar, sem mér er málið að vísu ekki eins skylt, en ég skoða mig þó í þessu máli sem öðrum stærri málum sem fulltrúa þeirra hér á þingi og skoða mig að því leyti ekki einungis bundinn við það hérað, sem hefur nú kjörið mig til þess að vera sinn fulltrúa hér.
Eitt atriði kom hér fram, sem hv. þm. V.-Sk. er búinn að gera að umtalsefni og ég skal ekki fjölyrða um, en það er viðvíkjandi raforkusjóðnum. En þetta atriði er ekki alveg rétt eins og hæstv. samgmrh. sagði frá því, og veit ég, að það er fyrir vangá. Það hefur verið safnað fé í varasjóð. Þegar ríkið gerist aðili að þessu, þá fær Reykjavík í sinn hlut það, sem lagt hefur verið fram af hálfu bæjarins í þann sjóð; en það, sem kom frá öðrum héruðum, hvort sem það kann að vera mikið eða lítið, gengur til ríkisins, en ekki til fólksins í þeim héruðum, þar sem fólkið hefur keypt raforkuna. Ég er ekkert að telja þetta eftir, því að ég geri ekki ráð fyrir, að það skipti miklu máli, að þetta verði neinn verulegur sjóður fyrir hin einstöku héruð, a. m. k. ekki fyrst í stað, sem kunna að fá raforkuna frá Soginu meðan Reykjavíkurbær á það fyrirtæki einn. En eigi að síður horfir málið svona við, og það er rétt, að það komi fram eins og það er. En ég geri ekkert úr þessu atriði hjá öðrum, sem eru miklu meiri.