04.03.1946
Neðri deild: 79. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1639 í B-deild Alþingistíðinda. (2347)
184. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég vildi bara benda landbn., sem ég geri ráð fyrir, að fái frv. til meðferðar milli umr., á, að ég held, að breyta þurfi orðalagi l. gr. og er því mjög meðmæltur, að sú breyt., sem hv. frsm. hefur hér lýst, að í þessu sé fólgin, komi inn í l. Það, sem sérstaklega styður að því, að ég er því meðmæltur, er það, að þá er nokkur von til þess, að þessar upplýsingar geti orðið að notum, en það hefur ekki verið hingað til. En til þess að geta haft gagn af því, annað en fróðleik, að vita, hve mikið fé er í landinu, þurfum við að vita, hve mikið það var um áramót, til þess að geta gizkað á, hve mikið kjöt komi á markaðinn næsta haust, en ekki fá það fyrst eftir 2–3 ár, eins og verið hefur. Það er raunar svo, að það er fróðlegt að fá þær upplýsingar um afurðir búanna, sem raunar má nú vinna úr skattaframtölunum, en þetta gefur ekki gr. tilefni til, að sé gert. Hún talar hvergi um það. Hagstofan fær hverja einustu skattskrá af öllu landinu, en það er ekki minnzt á framtal á heymagninu þar í skýrslunum. Ég ætla því, að 1. gr. þurfi alla að orða um. Þessar skýrslur þyrftu sem sagt að koma miklu fyrr. Núna eru þær raunar óvanalega snemma í því, því að búnaðarskýrslur fyrir 1944 eru komnar 1946, og er það miklu fyrr en maður hefur átt að venjast, en þó er það of seint til þess, að hægt sé að draga af því ýmsar ályktanir, sem að gagni mættu koma.
Ég vildi bara benda á þetta, að ég held, að það þurfi að orða alla 1. gr. um.