11.12.1945
Efri deild: 47. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 73 í B-deild Alþingistíðinda. (238)

6. mál, togarakaup ríkisins

Frsm. minni hl. (Bernharð Stefánsson):

Herra forseti. Venjulegur fundartími er nú liðinn og get ég verið fáorður og það því fremur, sem hv. þm. Barð., sem þóttist nú vera að svara mér, svaraði einhverri ræðu, sem hér hefur ekki verið haldin og hann bjó til. Hann spurði mig, hvaðan mér kæmi vit til þess að dæma um togara og talaði í þeim dúr, eins og ég hefði verið að finna að gerð þeirra togara, sem keyptir hafa verið. Ég hygg, að það hafi komið fram í handriti skrifara og hv. þdm hafi einnig heyrt, að ég hef ekki látið eitt einasta orð falla um það að lasta gerð þessara togara. Og ég tók einmitt fram, að ég hefði ekki vit á gerð togara. Ég held, að ég hafi aldrei komið um borð í slík skip, a. m. k. hef ég aldrei starfað þar. Hitt sagði ég, bæði í nál. og í minni ræðu, að þetta væri um deilt meðal manna, sem vit hefðu á þessum hlutum. Og við það stend ég, og það er annað mál. (GJ: Slúðursaga). Það má kalla allt, sem haft er eftir mönnum, slúðursögur. En þetta er um deilt. — Annars er það að segja viðkomandi vitinu á þessum hlutum, að ég veit ekki, hvort hv. þm. Barð. á að tala um það. Þó að ég sé síður en svo að bregða honum um heimsku, þá veit ég, að hann talar um fleira en hann hefur sérþekkingu á. Ég veit ekki nema ég hafi upp undir það eins mikið vit á togurum eins og hv. þm. Barð á búskap. Og þó hefur hann oft talað hér um landbúnaðarmál. Og ég hef t. d. áreiðanlega eins mikið vit á togurum eins og hann á menntamálum, og þó kemur oft fyrir, að hann talar hér um menntamál. T. d. á síðasta þingi hélt hann ræðu um það, hvernig Kennaraskóli Íslands ætti að vera o. s. frv. Og þar hygg ég, að hans þekking og vit standi ekki dýpra en mitt á togurum. — Frekar þarf ég svo ekki út í þetta atriði að fara.

Hv. þm. Barð. sagði sögu þessa máls hér í ræðu sinni og tók þar upp það, sem hæstv. forsrh. hafði sagt nýlega í útvarpi, sem sagt er sömuleiðis í nál. meiri hl. n., sem sagt hefur verið einnig af stjórnarflokkunum í stjórnarblöðunum. Og ég sé ekki, að ég þurfi að eltast við það, þó að þetta sé sagt hér í hv. d. í sjálfsagt 20 sinn, sem það er sagt opinberlega.

En út af því atriði, sem ég hef hér sérstaklega gert að umtalsefni, að hæstv. ríkisstjórn tekur sér stórfelldari heimild en áður hefur verið veitt og tekur sér hana sjálf, án samþykkis Alþ., þá benti hv. þm. Barð. á það, og hv. 1. þm. Reykv. tók undir það einnig, hvað gert hefði verið áður. Það er rétt, að það hafa oft verið gefin út bráðabirgðalög áður, en sjaldan um heimildir til stórkostlegra útgjalda. Það er að vísu rétt, að fyrrv. ríkisstj. gaf út bráðabirgðalög, sem heimiluðu henni útgjöld. En hún bar það alltaf áður undir alla flokka þingsins. Og þó svo hefði kunnað að fara, sem engar sannanir eru fyrir, að Framsfl. hefði neitað að taka ábyrgð á þessu máli, sem hér liggur fyrir, ef það hefði verið borið undir hann, þá var stjórnin búin að gera sína vísu. Það er ekkert þingræði í því að ráða stærstu málum til lykta án þess að þingfl., sem hefur meira en ¼ hluta þm., fái svo mikið sem um það að heyra.

Hv. þm. Barð. sagði, að þetta væri ekki utanríkismál, sem sæist á því, að fjhn. hefði það til meðferðar. Að veita um 60 millj. kr. lánsheimild er fjárhagsmál. En samningar við Breta er utanríkismál. (GJ: Það er misskilningur. Það er ekki samið við ensku ríkisstjórnina). Það er gert við útlenda menn. Og hvað sem því líður, hvort nauðsynlegt þótti, þegar bráðabirgðal. voru sett, að hafa þessa lánsheimild þá 60 millj. kr., þá er það annað mál nú, og einnig mátti heyra það á ræðum þessara tveggja hv. stuðningsmanna ríkisstj., sem síðast töluðu, að þetta er þarflaust nú. Og bráðabirgðal. eru ekki þannig, að það þurfi endilega að samþ. hvern einasta stafkrók, sem í þeim er í fyrstu. Bráðabirgðal. má breyta, án þess þau tapi að öðru leyti gildi sínu. Og það er sýnt, eftir upplýsingum, sem nú liggja fyrir, að það er ekkert annað, sem er því til fyrirstöðu, að breyta megi þessum l., en það, að það má ekki samþ. brtt. frá framsóknarmanni, ef brtt. mín verður ekki samþ., þar sem það liggur fyrir algerlega upplýst af hv. frsm. meiri hl. n. og hæstv. forsrh., að ekki er þörf, eins og nú er komið, á hærri lánsheimild en ég legg til, að samþ. verði, hvað sem upphaflega kann að hafa verið.

Það, sem hv. þm. Barð. var að tala um hlekki og vitnaði í það, að hann hefði í ýmsum málum sýnt það með framkomu sinni, að hann væri ekki í neinum hlekkjum, þá er það rétt, að hann er oft sanngjarn maður í smærri málum viðvíkjandi framkvæmd í héruðum. En í þessum bráðabirgðal. má engu hagga, yfirleitt að því er stuðningsflokkum ríkisstj. finnst og meiri hl. á Alþingi, og auðvitað beygir hv. þm. Barð. sig fyrir því.

Loks skal ég mótmæla því, sem hv. þm. Barð. sagði, að ég hefði sýnt þessu máli fjandskap. Ég sýndi því engan fjandskap. Ég vil ekki fella frv. En ég vil neita að taka þátt í afgreiðslu máls, sem mér er ekki leyfð önnur þátttaka í en að nafni til. Ég tek enga ábyrgð á þessu máli. Það var ekki borið undir mig og minn flokk fyrr en engu var hægt að breyta, nema þessu eina atriði.

Það kom ýmislegt það sama fram hjá hv. 1. þm. Reykv. og hv. þm. Barð., og þarf ég ekki að svara því aftur. Hv. 1. þm. Reykv. talaði um, að bráðabirgðalög hefðu verið gefin út áður. Og það er rétt, og það hefur verið vikið að því, en þau hafa ekki verið um svo stórfelldar lántökuheimildir og hér er um að ræða og ekki um svipað því jafnstórfellt mál. En allt er það misskilningur, bæði hjá hv. 1. þm. Reykv. og hv. þm. Barð., að Framsfl. hafi nokkuð sérstaklega að því staðið, að fyrrv. ríkisstj. setti bráðabirgðalög. Það var utanþingsstjórnin, sem báðir þessir hv. þm. sigtuðu til. Og þau bráðabirgðal., sem þeir töluðu um, voru borin undir alla flokka. Annars veit ég, að hv. 1. þm. Reykv. er mér sammála um það, að það sé varhugavert, þegar ríkisstjórn finnur upp á því að gefa út ákaflega mikið af bráðabirgðal. um þýðingarmikil mál, eins og hæstv. núv. ríkisstjórn hefur gert. Enda fór hann ekki langt út í þær sakir. Hann talaði um, að það væri ódýrara að gefa út bráðabirgðalög en að kalla saman þing. Það er náttúrlega miklu ódýrara að fela ríkisstj. einveldi, í fjögur ár í einu t. d., heldur en yfirleitt að hafa þing. Og mér hefur fundizt, það sem enn er af þessu þingi, að þingsetan hafi haft ákaflega lítið gildi. Tíminn hefur mest gengið í að samþ. bráðabirgðalög, sem ríkisstj. hefur áður gefið út. — Það má benda á ýmislegt í þessu sambandi. T. d., eins og allir muna, fóru fram kosningar í Noregi í haust, rétt eftir að þeir voru lausir þar við hernámið og stríðið. Rétt áður en þær fóru fram, kallaði norska stjórnin saman Stórþingið, til þess að bera undir það þýðingarmikið mál, sem hún taldi, að ekki mætti bíða. Ætli íslenzka ríkisstj., sem nú situr, hefði ekki gefið út bráðabirgðalög?

Það, sem hv. 1. þm. Reykv. var að tala um, að það hefði ekkert svar komið frá Framsfl., ef þetta mál hefði verið borið undir hann, þá er það nokkuð, sem hægt e,r að segja, en ekki sanna á nokkurn hátt. Ég veit ekki annað en Framsfl. hafi gefið svör, ef hann hefur verið spurður um eitthvað.

Hv. 1. þm. Reykv. var að tala um, að framsóknarmenn hefðu klofið fjhn. í báðum d. út af þessu máli. Það er rétt, að þeir gefa út sérstakt nál., af þeim ástæðum, sem ég hef tekið fram. Bæði höfum við viljað fá fram breyt. á frv., — flokksmaður minn í hv. Nd. vildi fá fram tvær breyt. á þessu frv., ég legg til aðeins eina, — og auk þess viljum við láta koma fram, að afgreiðsla málsins er eiginlega gerð og búin áður en þetta mál er nokkuð undir okkur borið. Hv. 1. þm. Reykv. sagði nú, þvert á móti því, sem í nál. meiri hl. n. stendur, að þessi heimild sé eins og mest kunni að þurfa að nota. En í nál. segir hann, að ekki þurfi að nota þessa heimild alla. Og eftir orðum hæstv. forsrh. getur ekki verið, að það þurfi að nota hana nú. Þess vegna hljóta allir að sjá, að þessu ákvæði má gjarnan breyta. Og það hefur ekki verið venja hingað til að gefa ríkisstj. meiri lánsheimildir en þörf er á. Það var ekki þörf á þessari heimild svona hárri, ef marka má orð hæstv. forsrh. og meiri hl. n. Og hvernig á að skilja það, ef brtt. um að gera hana lægri, en nægilega háa þó, verður felld?

Það er ýmislegt fleira, sem ég hefði þurft að svara. En það er komið fram yfir venjulegan fundartíma, og ég skal láta máli mínu lokið.