26.02.1946
Neðri deild: 75. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1645 í B-deild Alþingistíðinda. (2381)
174. mál, lögsagnarumdæmi Hafnarfjarðar
Samgmrh. (Emil Jónsson) :
Herra forseti. Þetta mál er flutt samkv. einróma samþykki bæjarstj. Hafnarfjarðar. Þegar l. nr. 11 frá 1. febr. 1936 voru samþ., var ríkisstj. heimilað að taka meginhlutann af eftirtöldum jörðum eignarnámi: Ás í Garðahreppi, Hvaleyri í Hafnarfirði, Garðakirkju í Garðahreppi, Krýsuvík og Stóra-Nýjabæ í Grindavíkurhreppi. Jafnframt eignarnáminu var ákveðið, að löndin skyldu lögð undir lögsagnarumdæmi Hafnarfjarðar, að undanskildum tveim síðasttöldu jörðunum. Þótti það ekki heppilegt, þar sem jarðir þær, er hér um ræðir, voru ekki í vegasambandi. Síðan þetta eignarnám hefur farið fram hafa lönd Áss, Garðakirkju og Hvaleyrar verið innlimuð í lögsagnarumdæmi Hafnarfjarðar. Eignarnám Krýsuvíkur fór fram um svipað leyti og á síðastliðnu sumri komst jörðin í vegasamband. Þar hafa framkvæmdir verið hafnar, þar hefur verið komið upp 40 km. langri girðingu, og byrjað er að bora eftir gufu og heitu vatni og aðrar nauðsynlegar ráðstafanir gerðar. Hafnar eru ýmiss konar ræktunarframkvæmdir, jarðyrkjuverkfæri hafa verið pöntuð o. s. frv. — Ég get getið þess hér, að boranir þessar hafa gefið miklu betri og meiri árangur en nokkrar aðrar boranir, sem framkvæmdar hafa verið hér á landi. Það hefur komið í ljós, að hægt er að fá 160° heita gufu, og er það miklu meiri hiti en vitað hefur verið um áður. Þess vegna eru miklar líkur fyrir stórfelldri virkjun í sambandi við jarðgufu þessa. Hafnarfjörður hefur ákveðið að halda afram og undirbúa enn frekari framkvæmdir. Þess vegna er í alla staði eðlilegt, að landið verði innlimað í lögsagnarumdæmi Hafnarfjarðar, en það er hins vegar óeðlilegt að þurfa að sækja til annars hrepps um leyfi í sambandi við fyrirhugaðar framkvæmdir. — Krýsuvík er nú í eyði, svo að ekki er um neina tekjuskerðingu fyrir Grindavíkurhrepp að ræða og því auðvelt að réttlæta þá innlimun, sem hér er farið fram á.
Sé ég svo ekki ástæðu til að fjölyrða um mál þetta frekar, en vænti þess, að hv. deild og Alþ. afgreiði mál þetta fljótt, því að bæjarstjórn Hafnarfjarðar telur það höfuðskilyrði, að landið verði innlimað í lögsagnarumdæmið, svo að framkvæmdir og tilraunir geti haldið áfram. Loks legg ég til, að frv. verði vísað til allshn. að þessari umr. lokinni.