11.04.1946
Neðri deild: 107. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1647 í B-deild Alþingistíðinda. (2399)

226. mál, fiskveiðasjóður Íslands

Frsm. (Sigurður Kristjánsson) :

Herra forseti. Frv. þetta er flutt af sjútvn. og felur ekki í sér neinar stórbreytingar á l. um fiskveiðasjóð. Breyt. er fólgin í 2. gr. frv., en í henni er svo fyrir mælt, að fiskveiðasjóður megi lána gegn fyrsta veðrétti allt að helmingi virðingarverðs, þó ekki hærra lán en fimm hundruð þúsund kr. Lengsti lánstími er 20 ár. — Í núgildandi l. er hámark lána til annars en fiskiskipa 75 þús. kr. Hv. þdm. er kunnugt um, að hér á þ. var frv. til l. um fiskveiðasjóð, en það breyttist í frv. til l. um stofnlánadeild sjávarútvegsins við Landsbanka Íslands. Við þá breyt. urðu nokkur atriði viðskila við frv., en á hinn bóginn var eigi unnt að bera þau fram í frv.-formi, fyrr en útséð væri um, að stofnlánad. yrði samþ. Það varð að flytja þetta frv. sér.

Stj. fiskveiðasjóðs leggur mjög ríka áherzlu á, að þetta nái fram að ganga, frv. verði samþ., því að ná þarf til þeirra, er ekki geta fengið lán í stofnlánadeildinni. Verður það ekki hægt, nema frv. þetta verði að l. Ég held, að enginn ágreiningur geti orðið um það. Það er lítið, komið frá n., og á því naumast við,að vísa því til nefndar. — Ég beini þeirri ósk til hæstv. forseta, að málinu verði vísað til 2. umr., en ekki til n. Það þarf að afgr. frv., áður en þ. lýkur.