05.04.1946
Efri deild: 100. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1684 í B-deild Alþingistíðinda. (2450)
105. mál, íbúðarhúsabyggingar í kaupstöðum og kauptúnum
Steingrímur Aðalsteinsson:
Herra forseti. Ég hef ekki ástæðu til að tala mikið fyrir þeim brtt., sem ég hef flutt á þskj. 679, vegna þess að ekki hafa orðið miklar umr. um þær og það, sem á þær hefur verið minnzt, hefur verið á þann veg, að í rauninni hefur verið tekið undir till., þ. e. a. s., efni þeirra talið þess eðlis, að ástæða væri til að veita því athygli, en hins vegar talin nokkur hætta á því, að það mundi verða til þess að tefja eða kannske hindra framgang frv. nú á þessu þingi, ef þær yrðu teknar inn í það. Hæstv. félmrh. lét orð falla um það, að till. mín um Byggingarstofnun ríkisins væri nýmæli, sem væri mjög athugavert, og mér skildist hann telja sig að ýmsu leyti mjög samþykkan henni, en aðeins þetta stæði í veginum, að hann óttaðist það, eftir þau ummæli, sem fallið hafa hér í d. í sambandi við þetta mál, að það mundi verða til þess, að andstaða myndaðist gegn framgangi frv., og mundi þess vegna ekki treysta sér til þess að mæla með þessari till. nú á þessu stigi málsins, það er vafalaust rétt, og ég varð þess einnig sérstaklega var í heilbr.- og félmn., þegar hún fjallaði um þetta mál, að nm. voru ekki við því búnir að ganga inn á þessa till. eins og sakir standa nú, og ég geri ráð fyrir, eftir þeim ummælum, sem hér hafa fallið, sem hafa farið á sömu leið, að þessi till. nái ekki samþykki þingsins nú að þessu sinni. Hins vegar þykir mér vel farið að heyra þau ummæli, sem hér hafa fallið, að hv. þd. og sá hæstv. ráðh., sem hér hefur tekið þátt í umr., virðist fús til þess að taka þetta mál til athugunar. Verður þá tækifæri til þess, þótt síðar verði, að ná samkomulagi um það að mynda slíka stofnun og koma þar með byggingarmálunum í landinu í ákveðið form, sem vafalaust gæti orðið til þess, ekki aðeins að greiða fyrir því, að íbúðarhúsabyggingar sérstaklega yrðu meiri og þannig leyst úr húsnæðisvandræðunum fyrr en ella, heldur einnig mundi verða til þess að gera þessar íbúðarhúsabyggingar ódýrari og létta þar með undir með mönnum að eignast þak yfir höfuðið.
Um hina aðaltill. mína varðandi það að tryggja betur en með frv. nauðsynlegt fé til þeirrar lánastarfsemi, sem frv. gerir ráð fyrir til íbúðarhúsbygginga, þá skilst mér einnig, að hæstv. félmrh. telji það nauðsynlegt og byggist við því, að það mundi verða mjög bráðlega að gera frekari ráðstafanir en í frv. felast til þess að tryggja þessa hlið málsins, svo að verulegar framkvæmdir yrðu í byggingarmálum á grundvelli þessara laga. Mér þykir einnig vænt um að heyra það, og vildi þá a. m. k. vonast til þess, þótt ekki verði samþ. till. mín, sem hér liggur fyrir um að tryggja betur fjárútvegun til samvinnubygginga, að þá mundi hæstv. félmrh. og flokksmenn hans vera til viðræðna um frv. það, sem nú liggur fyrir Nd. um það að tryggja fjárútvegun eða tryggja það. að þau lán fáist til verkamannabústaða, sem nauðsynleg eru til þess að verulega auknar framkvæmdir verði í þeim byggingarmálum. Um aðrar till., sem ég hef flutt hér, hefur ekki verið rætt, og umr. hér hafa orðið miklu minni um þetta mál en ég hefði haldið ástæðu til og minni en oft hafa orðið um mál, sem ekki eru þó jafnþýðingarmikil og það, sem nú er til meðferðar. Ég hefði gjarnan viljað spyrja hæstv. félmrh. um afstöðu hans til 2. brtt. minnar á þskj. 679, þ. e. a. s. varðandi það, að sett sé inn í frv. sérákvæði fyrir Reykjavík varðandi tölu byggingarfélaga. Í frv. er gert ráð fyrir, að lána megi aðeins til eins byggingarfélags á sama stað, og ég hef ekki séð ástæðu til að flytja brtt. um, að það gildi sem meginregla. En í brtt. minni felst, að hér í Reykjavík séu sett um þetta sérákvæði, bæði vegna þess, hvað Reykjavík er fjölmennari en allir aðrir staðir hér á landi, sem til greina koma, og þá einnig vegna hins, að hér í bænum eru þegar til tvö byggingarfélög, og ég vildi mega vænta þess, að þegar nú er verið að gera breyt. á l. um verkamannabústaði, sem á að verða til þess að auka mjög byggingarstarfsemi þessa félags, þá sé því byggingarfélagi, sem rutt hefur brautina hér, í Reykjavík í þessum efnum og sennilega byggt fleiri íbúðir en nokkurt annað félag, sem að þessu starfar, gefið tækifæri til þess að halda starfsemi sinni áfram. Því að vafalaust mundi það verða til þess, að meiri framkvæmdir, yrðu á grundvelli þessara l., ef það félag fengi einnig tækifæri til þess að starfa, heldur en annars, og ég vil vænta þess, að aðaltilgangur frv. sé að örva þessa byggingarstarfsemi sem mest. — Ég vildi svo, af því að ég hef minnzt á þessa till., óska eftir því að fá að heyra afstöðu hæstv. félmrh. til þessa atriðis.