26.03.1946
Efri deild: 92. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1417 í B-deild Alþingistíðinda. (2482)
144. mál, Austurvegur
Gísli Jónsson:
Ég vil nota tækifærið til að mótmæla því, sem hv. 6. þm. Reykv. sagði í sinni síðustu ræðu. Það stafar af því, að hann hefur ekki hlustað á þessar umr. og veit því ekki, um hvað hann er að tala. Ég veit ekki, hvaðan hv. þm. kemur heimild til að segja hér á Alþ., að mér blöskri það fé, sem fer til þessara framkvæmda. Ég hef alls ekkert talað á móti þessu máli, eins og hv. þm. mundi vita, ef hann hefði fylgzt með umr. Það, sem ég hef bent á, er galli, sem er á frv. annars vegar, og það, sem óþarft er í því hins vegar, vegna þess að það er í öðrum 1., og tel ég það engan fjandskap við málið. Ég hef bent á það, að ef með þessum l. á að tryggja ákveðnum hluta þjóðarinnar rétt, þá eigi að tryggja öðrum hlutum þjóðarinnar sama rétt. Þessu hef ég haldið fram. Ég mótmæli því algerlega, að mér ofbjóði þessi fjárhæð, og ég mótmæli því, að ég láti stjórnast í þessu máli af kjördæmasjónarmiði. Ég skal ekki segja um það, hvort þetta geti átt við um hv. þm. S.-Þ., en það er algerlega rangt hvað mig áhrærir. Ég vil leyfa mér að benda á, að um það leyti sem verið var að ganga frá fjárl. fyrir 1946, var lagt til að verja nær 4 millj. kr. til þessa vegar. Ábyrgðarlaus fjvn. hefði lagt til, að það væri tekið upp á fjárl., og ég veit um einn hv. þm., sem var svo ábyrgðarlaus að taka við því. En hann hafði engin ráð til að fá á móti því tekjur. En ég veit ekki, hvernig á að fá þetta fram áður en búið er að ræða um það, hvernig ætlað er að afla tekna. Þess vegna er frávísun fjvn. á 3.7 millj. kr. enginn dómur um það, hvort hún er á móti málinu eða ekki.
Ég vil leyfa mér að benda hv. 6. þm. Reykv. á, — við hann er hægt að ræða mál, hann er ekki eins og fló á skinni hér og þar, — að lýst hefur verið yfir af hæstv. samgmrh., að ef hann ráði yfir þessum vegaframkvæmdum, þá ætli hann að láta gera Krýsuvíkurveginn, sem bæði ég og hv. 6. þm. Reykv. erum á móti. Í sambandi við það vil ég leyfa mér að benda á, að fjvn. lækkaði till. hans um fjárveitingu til þessa vegar um 150 þús. kr. — Ég vildi aðeins benda á þessa staðreynd. Það liggja gallar í málinu, en ég játa ekki, að ég sé með fjandskap gegn því, nema síður sé.
Þess utan vil ég hér benda á eitt atriði, og það vil ég fá hv. 6. þm. Reykv. til að skilja. Það er það, að ekki er meiri þörf fyrir Reykvíkinga að hafa mjólk handa sínum börnum, þótt þau séu 10 þúsund, heldur en fyrir aðra staði á landinu, sem hafa kannske ekki nema 500 börn. Og þennan rétt, sem verið er með þessu frv. að tryggja vissum hluta þjóðarinnar, vil ég líka tryggja öðrum hlutum hennar.
Hv. 6. þm. Reykv. sagði, að ekkert mál væri eins vel undirbúið og þetta mál. Um það skal ég ekki segja. En ég vil leyfa mér að benda á eitt atriði. Í till. n. er því haldið fram, að samfara þessari miklu þörf skuli enn þá haldið áfram með Krýsuvíkurleiðina og umbætur á Þingvallaveginum. Ég vil líka leyfa mér að benda á, að sundurliðað er, hvað hver vegarspotti kostar, og það skiptir millj., hvað hægt er að spara með lántöku fyrst um sinn með því að sleppa spottum, sem ekki eru eins aðkallandi og sá, sem liggur um Þrengslin. Ég tel þetta engan fjandskap. Það er áætlað að taka 20 millj. kr. lán til þess að gera alla leiðina. Samgmn. vill fara út fyrir öll takmörk til að tryggja á þessari leið steyptan veg, hvort sem hægt er að tryggja það öðrum landsbúum eða ekki. Samgmn. gerði allt til óþurftar fyrir málið og mér finnst hún hafi sýnt því meiri fjandskap en við, sem bentum á, að hægt væri að koma því á eðlilegri og betri rekspöl.
Hv. 6. þm. Reykv. sagði, að menn mundu ekki telja það óeðlilegt að taka lán til járnbrautarlagningar. Það er önnur hlið á þessu máli. Og ég er ekki viss um nema þessi leið sé miklu óheppilegri en járnbrautarlagningin, en það er nokkuð annars eðlis. Þegar byggð er járnbraut, þá er tekið beint fast gjald til að standa undir kostnaðinum. En nú getur komið til mála að leggja sérstakt gjald á þá, sem fara eftir þessum vegi, en sem sagt, í þessu liggur eðlismunurinn. En ef farið er inn á þá braut að taka lán til vegagerðar þessarar, þá er ekki hægt að neita öðrum héruðum landsins að fara inn á þá sömu braut, svo framarlega sem þeir geta fært sönnur á það, að þeirra flutningaþörf sé eins brýn og hér. Og það er enginn erfiðleiki að gera það, því að þörfin er jafnsterk, þótt öðrum megin séu 50 þús. en hinum megin 10–20 þús. Ég er algerlega ósammála 6. þm. Reykv. um að setja þetta gjald. Það er fullkomlega rétt að taka gjaldið, ef það er látið renna til vegagerðar nú þegar. Ég vil, að hv. 6. þm. Reykv. hjálpi flm. til að leyfa það.