15.04.1946
Neðri deild: 111. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1694 í B-deild Alþingistíðinda. (2494)
105. mál, íbúðarhúsabyggingar í kaupstöðum og kauptúnum
Sigurður Thoroddsen:
Herra forseti. Hv. frsm. meiri hl. n. hefur nú skýrt afstöðu meiri hl. n. til þessa máls, og þá um leið gert grein fyrir þeirri sérafstöðu, sem ég hef í þessu máli. Ég er ekki í vafa um það, að hér er um mjög þýðingarmikið mál að ræða, sem nauðsynlegt er, að nái fram að ganga nú á þessu þingi.
Hv. frsm. tók það fram, réttilega að vísu, að ég mundi fylgja þessu frv., hvaða afdrif sem brtt. mínar fengju. Honum hafði skilizt á mér, að ég teldi aðalatriðið að fá fram þau ákvæði, sem nú felast í frv. eins og það liggur fyrir, og skal ég að vísu játa, að ég tel mikið unnið með því, sem í frv. felst. En þó legg ég líka megináherzlu á það, að hægt verði að framkvæma þær endurbætur, sem felast í þessu frv.
Brtt., sem ég flyt hér á þskj. 824, sérstaklega sú fyrri, miða einmitt að því að tryggja það, að þær endurbætur, sem í frv. felast eins og það liggur fyrir nú, geti orðið auðveldar. Það er ekki vafa bundið, að mikið er unnið með frv. eins og það liggur fyrir, en það tryggir ekki nægilega, að úr framkvæmdunum geti orðið. Og nægir í þessu efni að vísa til grg. fyrir frv. til l. um verkamannabústaði, sem 8. þm. Reykv. flutti hér á þingi og er í sömu átt og þær brtt., sem ég flyt nú við þetta frv. Hann bendir þar á í grg. sinni, að byggingarsjóði verkamanna hafi nú borizt meiri og stærri lánbeiðnir en áður, en hins vegar hafi aðstaða hans til fjáröflunar ekki batnað að sama skapi. Og nú er útboð á lánum hefur farið fram, hefur það sýnt sig, að fé hefur ekki fengizt. Brtt. mín fer í þá átt, eins og hv. d. er kunnugt um, að ef byggingarstj. samþykkir að afla lánsfjár til byggingarframkvæmda, þá skuli Landsbankanum skylt að taka við bréfum við nafnverði þegar í stað og síðan annast útsölu á þeim. En þó er sá varnagli, að Landsbankinn er ekki skyldur að taka meira af þessum bréfum en fyrir 20 millj. kr. Og ég legg áherzlu á, að þessi brtt. fáist inn í frv., því að hún tryggir, að hægt verði að framkvæma þær byggingaráætlanir, sem felast í frv.
Þá er önnur brtt. mín um það, að tvö byggingarfélög verkamanna skuli hafa rétt til þess að starfa hér í Reykjavík, öðlist viðurkenningu og njóti sömu réttinda, samkv. reglum, sem frv. þetta felur í sér.
Byggingarfélag alþýðu er elzta byggingarfélag hér í Reykjavík. Það hóf brautryðjandastarf eftir l. um verkamannabústaði, sem samþ. voru 1929, og lét smíða töluvert af íbúðum. En það var síðan svipt öllum réttindum með bráðabirgðal., eingöngu að því er virðist fyrir óvild þáverandi ráðh. til formanns félagsins, og því var þar með meinað að starfa og byggja meira með því að neitað var um lán. Hins vegar hafa félagsmenn, sem voru nokkuð á þriðja hundrað manns, og í það minnsta hefur á annað hundrað manns haldið tryggð við félagið. Þeir hafa greitt gjöld til þess síðan og vonað, að hlutur þeirra yrði réttur. Ég vona, að hv. d. verði við þeirri sanngirniskröfu þeirra félagsmanna og samþ. þessa brtt.