28.03.1946
Neðri deild: 97. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1422 í B-deild Alþingistíðinda. (2502)

144. mál, Austurvegur

Samgmrh. (Emil Jónsson) :

Herra forseti. Mér þykir rétt, þar sem hér er um allstórt mál að ræða, að beina nokkrum orðum til þeirrar hv. n., sem fær málið til meðferðar, en það verður sennilega samgmn.

Mál þetta var flutt í Ed. áður en ráðuneytinu hafði gefizt kostur á að athuga það nægilega, og er það því með nokkuð öðrum svip en ég hefði kosið. Frv. er að því leyti öðruvísi byggt upp en venja er til, að gert er ráð fyrir að fá langmestan hluta fjárins að láni, þetta er nýmæli í íslenzkri vegalöggjöf. Annað nýmæli er það, að ákveðið er, hvenær vegurinn verði fullgerður, eða eftir 6 ár.

Um frv. almennt vil ég segja það, að allir munu á einu máli um þýðingu þess að hafa góðar samgöngur á þessu svæði, og er þetta óneitanlega spor í þá átt. En hins vegar hefur mér fundizt gæta nokkurs misskilnings í þessu máli, því að leið þessi hefur verið sett í samband við vetrarferðir að nokkru leyti og gert ráð fyrir, að vegurinn gæti komið að notum sem vetrarvegur allan ársins hring. En það vil ég leyfa mér að draga í efa. Ég ætla, að önnur leið sé til þess hentugri, sem þegar er alllangt komin í framkvæmd. En eins og kunnugt er, var fyrir 10 árum byrjað að leggja veg um Krýsuvík sem vetrarveg milli þessara landshluta, og er honum svo langt komið, að ekki nema 2½ millj. kr. þarf í viðbót til að ljúka honum. Vart þykir mér það orka tvímælis að tryggja vetrarferðirnar með því að ljúka þeirri leið.

Þessi atriði vildi ég mjög, að hv. n., sem fær málið til athugunar, hafi til hliðsjónar, þegar hún tekur það fyrir til athugunar: Í fyrsta lagi, hvort ekki sé unnt að afla fjár til framkvæmdanna á annan hátt en með lántöku í svo stóru sniði, og í öðru lagi, hvort tímatakmarkið, sem sett er, sé ekki full þröngt, og í þriðja lagi, hvort ekki eigi að fullgera þann veg, sem unnið hefur verið að í 10 ár, áður en ráðizt er í þetta stórvirki. Sú fjárupphæð, sem þarf til að ljúka þeim vegi, er aðeins tíundi partur þess fjár, sem ætlað er til nýja vegarins. — Ég vil ekki, að orð mín séu skilin svo, að ég vilji leggja stein í götu þessa máls. En þessi atriði, sem ég hef nefnt, eru svo veigamikil, að þau verða að athugast áður en málið verður afgreitt.