15.04.1946
Neðri deild: 111. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1695 í B-deild Alþingistíðinda. (2528)

105. mál, íbúðarhúsabyggingar í kaupstöðum og kauptúnum

Frsm. minni hl. (Páll Zóphóníasson) :

Fyrst vil ég vekja athygli hæstv. forseta á því, að það eru margar prentvillur á þessum þskj. Brtt. mínar á þskj. 823 eru sagðar gefnar út í Ed. í stað Nd., og annað er eftir því. Þetta er þess eðlis, að það þarf að leiðrétta það. En áður en ég byrja, vil ég víta þá meðferð, sem þetta mál fær hér í hv. d. Og þetta hefur viðgengizt hér áður, mál, sem eru búin að vera stundum vikur og mánuði í annarri d., þeim er fleygt inn í hina d. á síðustu stundu. Svo er ætlazt til, að menn samþ. frv. óhugsað og óathugað á einum eða tveim dögum. Og ef einhver nm. vill ræða frv. eða breyta því, þá er það ekki hægt, því að við engu má hrófla, ef frv. á að ná fram að ganga. Þetta eru óheyrileg vinnubrögð. Ég kenni engum sérstökum um þetta hér, þetta hefur skeð hér áður. En ég veit, að það fór til n. í Ed. 22. nóv., og frá þeirri d. var það afgr. 12. apríl. Þá var því ekki hraðað meira en svo, að allur formiðdagurinn var látinn líða án þess að kalla saman fund. En undir þingfundi var okkur skipað að ræða málið í n. Þeim vinnubrögðum neitaði ég. Svo var flaustrað af fundi í gær á nokkrum mínútum. Og þá var ómögulegt að breyta nokkru. Ég vildi koma með allmargar breytingar, en það mátti ekki hrófla við neinu, ef allt átti að vera búið á miðvikudag. Þetta er óviðeigandi í alla staði. Úr því það eru tvær d., þá á báðum að gefast tími til að ræða málin og ná samkomulagi um þau. Ég get ekki verið sammála meðnm. mínum og legg fram brtt. við frv. vegna ekki fárra orsaka. Ég tel heppilegast, að byggingarsjóður sé einn og annist lántökur til byggingarfélaga, hvort sem talað er um byggingarfélög verkamanna eða byggingarsamvinnufélög. Byggingarsjóður lánar svo slíkum byggingarfélögum út á hús, sem þau vilja byggja. Með framlagi ríkis og bæja má lækka vexti af byggingarlánum, koma á sameiginlegum innkaupum á öllu byggingarefni til húsa, sem sjóðurinn lánar til, og hafa sameiginlega menn til að hafa eftirlit og umsjón með öllum byggingunum. Styður þetta allt að því að gera byggingarnar ódýrari, en það tel ég annan höfuðtilgang frumvarpsins. Það er ekki vafi á því, að það fyrirkomulag að gera sameiginlega innkaup og hafa sameiginlega umsjón með þessum húsum, það mundi spara þúsundir eða tugþúsundir á hvert hús. Sjóðurinn á svo að lána út með lágum vöxtum og jöfnum höndum til verkamannabústaða og samvinnubyggingarfélaga og nota tekjur sjóðsins til að standa undir vaxtamismuninum. Að öðru leyti finnst mér, lánstíminn 45–60 ár vera of langur til fasteigna. Einnig finnst mér of mikill munur annars vegar á því, sem kallað er verkamannabústaðir, og hins vegar byggingarsamvinnufélagsskapur, sem hér er, talað um sem samvinnufélög. Ef byggingarsjóðsstjórnin er ein, getur hún jafnað þennan mismun, sem þarna er gerður. Ég hef lagt til, að munurinn yrði gerður hóflegri og þarna væri um 2–4% vexti að ræða, en það mun vera, um helmings munur miðað við þau kjör, sem menn búa nú við, eða meira. Ég skal svo ekki fara nánar út í þetta atriði. En svo er það annað atriði, sem hér kemur til greina. Eins og frv. nú er, eru það nokkrir menn, sem þannig er ástatt um, að þeir eru algerlega útundan og geta hvergi fengið nein lán, þótt þeir byggi hús, nema víxil og þess háttar lán. Veðdeildarlán fást aðeins út á hús, sem standa á löggiltri verzlunarlóð. Ef húsið stendur fyrir, utan verzlunarlóðina, og þar standa fleiri og færri hús í landinu, þá getur eigandinn ekki fengið veðdeildarlán. Það er að vísu til í Búnaðarbankanum smábýladeild, hún á að geta veitt lán til húsa, sem standa fyrir utan löggilta verzlunarlóð, en þó því aðeins, að því húsi fylgi nokkurt land og að þar megi hafa dálítinn búskap. Ef svo óheppilega vill til, að þar er ekki land, sem nemur 1–2 ha, og maðurinn ætlar að stunda verkamannavinnu eða sjómennsku, þá getur hann hvergi fengið lán. Það mætti segja, að þessir menn gætu komizt undir ákvæði þessa frv., ef þeir, eru það margir í þessu þorpi, að þeir geti stofnað byggingarsamvinnufélag eða kæmu upp verkamannabústöðum. En það er ekki víst, að slíkt sé hægt, og mörg þorp eru svo lítil, að líkindi eru ekki til þess, að nógu margir vilji byggja á sama árinu. Þessum mönnum er skipað í fjórða kafla hjá mér. Þar, er byggingarsjóði heimilað að lána til slíkra staða og hér um ræðir með sömu kjörum, enda sé þá slíkum lánsbeiðnum látin fylgja umsögn hlutaðeigandi sveitarstjórnar um byggingarþörf og ástæður lánbeiðenda. Með þessu frv. er séð fyrir lánaþörf þeirra, sem eru það margir saman, að þeir geta myndað verkamannabústaða- og byggingarsamvinnufélög. En eins og ég sagði áðan, standa þeir fyrir utan þetta, sem eru ekki á löglegri verzlunarlóð í þorpi og eru svo fámennir að geta ekki stofnað byggingarfélag. Og ef þetta er á stað eins og t. d. Selfossi, þá hafa þeir engin réttindi, því að þar er engin lögleg verzlunarlóð. Þar yrðu menn að fá sér nógu stóra lóð og koma sér upp smábýlum. Ég tel það mikilsvert, að þessari breyt. verði komið inn í frv. Ég er sammála meðnm. mínum um það, að mikil þörf er á því að samþ. löggjöf um það, er ýtir undir, að byggt sé í þorpum og kaupstöðum. Og að því leyti vil ég styðja að framgangi þessa máls. En ég hefði viljað óska þess, þótt það hafi enga þýðingu eins og málinu er nú komið, að frv. hefði fengið að vera í n. í 2–3 daga og reynt að fá samkomulag um það. En svo flausturslega er yfir það farið, að ekki eru einu sinni leiðréttar prentvillur og ekki dagsetningar. Það er hlaupið yfir frv. á því hundavaði, að það á að styrkja „leiksóla“ í verkamannabústöðum. Hvaða sólar eru það? Eru það sólar, sem krakkarnir ganga á, þegar þau eru að leika sér? Ég veit ekki. Og fleira er það, sem þyrfti að leiðrétta.