15.04.1946
Neðri deild: 111. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1711 í B-deild Alþingistíðinda. (2564)

105. mál, íbúðarhúsabyggingar í kaupstöðum og kauptúnum

Sigurður Guðnason:

Herra forseti. Ég skal ekki tefja umr., en vildi aðeins segja örfá orð út af ræðu hv. 4. þm. Reykv. Mér fannst hún gefa skýringu á því, hvernig þetta mál horfir við. Hann hefur tekið ósköp vel í þær brtt., sem fram hafa komið, allt þar til hv. 11. landsk. kemur með brtt. um Byggingarfélag alþýðu. Þá er eins og olíu sé hellt í eld. Út af því, að það hafi verið félaginu sjálfu að kenna, að ekki var byggt, þá vil ég segja það, að við vorum báðir á öllum fundum í því félagi, og honum ætti að vera um það kunnugt, að þetta er rangt. Þegar hann fann það, að félagsmenn vildu ekki breyta um fyrirkomulag og þeir áttu ekki nógu sterk orð til þess að hrósa formanni sínum og hann sá, að fólkið vildi ekki breyta um mann, þá hafði hann vald til þess að setja þessi brbl. og gerði það. Og eitt vil ég segja, og það er það, að enginn maður hefur unnið jafnmikið starf í þágu verkamannabústaðanna og Héðinn Valdimarsson. Byggingar þær, er reistar voru hjá Byggingarfélagi verkamanna voru 2 árum seinna á ferðinni en ef hitt félagið hefði haldið áfram að starfa. Ég bjóst við því, að hv. Alþ. sæi um, að félagsmenn í Byggingarfélagi alþýðu, sem beðið hafa í mörg ár með að fá að greiða gjöld sín, ættu að fá leyfi til þess og fá rétt til þess að byggja. En mönnum blandast ekki hugur um það, að það er ekki svo lítils virði að eiga þarna 1/5 hluta virði í byggingum. Við í Byggingarfélagi alþýðu bárum það traust til löggjafarsamkomunnar, þrátt fyrir brbl., að okkur yrði þá leyft að byggja og fyrnt væri yfir þessar gömlu væringar, en þá er hv. 4. þm. Reykv. eins og kveikja í tundri og ýfir þetta upp aftur.