02.04.1946
Efri deild: 97. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1468 í B-deild Alþingistíðinda. (2592)
29. mál, fræðsla barna
Menntmrh. (Brynjólfur Bjarnason) :
Það lítur út fyrir, að sumir hv. þm. séu í illu skapi og óski eftir að halda eldhúsdag yfir mér. — Viðvíkjandi upplestri þessa bréfs vil ég taka það fram, að ég sé ekki, að það komi því máli, sem hér er til umr., neitt við. Það hefur áður verið rætt og ritað um það í blöðum. Fræðslumálastjóri mælti í þessu tilfelli með öðrum manni en skólanefndin, og dæmi um svipuð málsatvik munu fjölmörg, ekki einungis á Norðurlöndum, heldur einnig hér á landi. Þetta bréf skólanefndarinnar er því hin herfilegasta vitleysa, sem ekkert mark er á takandi. Hin nýja skólanefnd, sem síðan var skipuð, komst að fullu samkomulagi við fræðslumálastjórnina, og ætti þetta mál þar með að vera útrætt. — Ég mótmælti þeirri alröngu fullyrðingu, sem fram kom hér í gær um, að skólanefndin hefði óskað þess, að núverandi skólastjóri yrði rekinn, það er fleipur eitt.
Ég mun ekki gera hv. 6. þm. Reykv. það til geðs að svara honum. Það er sýnilegt, að hann notar þetta tækifæri til að halda uppi málþófi. Vætanlega hlýtur hv. 6. þm. Reykv. að sjá, að á meðan ekki eru sett sérstök lög varðandi skóla fyrir vangæf börn, gilda þessi lög, svo langt sem þau ná. Hitt er annað mál, að á sínum tíma gæti komið til greina að setja, í lög ákvæði varðandi slíka skóla. En það, sem hann færði fram, er engin sönnun fyrir því, að þetta frv. sé illa undirbúið. Vitanlega þarf að endurskoða slík lög, þar sem sífelld þróun á sér stað í þessum málum, og gildir það einnig um aðra löggjöf. Þetta veit hv. 6. þm. Reykv., þótt hann finni ástæðu til að ræða þetta, af því hann vill tefja málið. (BBen: Er hæstv. ráðh. hræddur um, að ég ætli að eitra fyrir hann?) Er hv. þm. orðinn svo taugaslappur, að hann geti ekki hagað sér eins og þm. sæmir? Annars kom það fram í ræðu hv. þm., að þessar till. hans sumar hverjar, eins og till., sem ég vil leyfa mér að nefna fáránlega, þ. e. till. um skipun fræðsluráðs, að formaður þess sé sjálfkjörinn, bæjarstjóri eða sýslumaður, koma til af því, að hv. þm. hefur megnt vantraust á þeim ráðh., sem fer með þessi mál. Þetta er borið fram sem vantraust á mig, vegna þess að hann heldur því fram, að ég hafi misnotað það vald, sem ég hef, til að skipa form. skólan., álítur, að ég hafi misnotað þetta vald til þess að skipa mína flokksmenn í stað sjálfstæðismanna. Hv. þm. sagði, að ég hefði farið allt öðruvísi að en fyrirrennarar mínir. Mér þætti fróðlegt, ef hv. þm. sýndi lit á því að sanna þetta. Áður en hægt er að taka nokkurt mark á orðum hans, verður hann að leggja fram skýrslu um pólitíska skoðun þeirra, sem áður voru form. skólanefnda, og þeirra, sem nú hafa verið skipaðir. Og það er áreiðanlegt, að það eru færri sósíalistar, sem nú hafa verið skipaðir, heldur en framsóknarmenn og sjálfstæðismenn áður. Fyrr en slík skýrsla liggur fyrir, þá er ekkert að marka orð hans. Þau eru aðeins fullyrðingar, sem hafa við ekkert að styðjast. Annars er það auðséð, hvers hv. þm. krefst, hann krefst þess, að ég skipi yfirleitt sjálfstæðismenn sem form. skólan., ef þeir hafa verið það áður. Ef ég hefði fylgt þeirri reglu og ekki skipt um form. skólan. nema þar sem nauðsynlegt var, þá er gefið mál, hversu skólan. hefðu verið pólitískt skipaðar. Formenn þeirra hefðu nær eingöngu verið framsóknarmenn og sjálfstæðismenn. En hvernig skyldi standa á því? Ætli það standi ekki í sambandi við það, að framsóknarmenn og sjálfstæðismenn hafa undanfarið farið með þessi mál? Meðan það fyrirkomulag er, sem nú ríkir, að ráðh. skipi formann skólan., þá verður það að vera á hans valdi. — Ég ætla svo ekki að fara fleiri orðum um þetta.