08.04.1946
Efri deild: 101. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1471 í B-deild Alþingistíðinda. (2596)
29. mál, fræðsla barna
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég bjóst við, að hv. menntmn. hefði viljað sýna málinu þá umhyggjusemi að halda fund um það milli umr. En það fékkst nú ekki. Því var lýst yfir af hv. 7. landsk. af miklum hroka, að hvorki þyrftu þeir leiðbeininga með né væri þess þörf, að gerðum þeirra yrði breytt. En í svo alvarlegu máli hefði ég óskað, að ábyrgir menn sýndu ekki þvílíkan hroka og hér er gert af þessum hv. þm. — Allar þær till., sem hér eru komnar fram, eru ekki byggðar á neinni gullvægri reglu. Það á að samræma vilja annarra þm. — Það var alveg óviðeigandi, er hv. þm. lét þess getið, að flokkur minn vildi ekki bera ábyrgð á því, sem ég segði hér. Ég tel, að hv. þm. ætti að láta aka sér í hjólbörum út úr hv. d. heldur en láta aka sér í hjólbörum milli deilda. Og ætti þessi hv. þm. og að temja sér meiri háttvísi í umræðum hér og halda sér innan takmarka málsins heldur en vera með persónulegar ýfingar.
Ég hef nú leyft mér að bera fram brtt. á þskj. 691 til umbóta á því, sem hv. frsm. hefur litið yfir í þessu frv. og þótt harla gott. — 1. brtt. mín er við 13. gr., um umorðun á 2. málsgr. þeirrar gr., um að ákvæðin um kennarabústaði nái aðeins til heimavistarskóla. Ríkissjóður hefur til þessa ekki séð sér fært einu sinni að uppfylla skyldur sínar í þessu efni í sambandi við heimavistarskólana. Er því varla þess að vænta, að hann sjái sér fært að bæta við sig nýjum skyldum í þessu efni, sem hann mundi gera, ef frv. væri samþ. óbreytt. Og þó að þetta frv. væri samþ. óbreytt, þá yrði það í þessu tilliti ekki nema pappírsgagn eitt. Þess vegna er ekki ástæða til að samþ. þessi ákvæði frv. óbreytt. Mæli ég eindregið með því, að þessi brtt. mín verði samþ. Þegar ríkissjóður hins vegar er búinn að uppfylla skyldur sínar í þessu efni gagnvart heimavistarskólunum — og að koma upp öllum heimavistarskólunum —, þá er fyrst tími kominn til þess að athuga, hvort á að leggja á hann nýjar kvaðir í þessum efnum.
2. brtt. mín er við 16. gr., um að á eftir orðinu „kennaraprófi“ í fyrri málsgr. komi: „eða hafi aðra sambærilega menntun að dómi fræðslumálastjóra.“ Ég sé ekki, hvers vegna á að útiloka þá menn, sem sambærilega menntun hafa barnakennurum, frá því að mega kenna börnum í barnaskólum, nema það sé gert til þess að ala upp stéttarklíkuskap, til þess að halda við fákænsku í kennarastéttinni, halda henni í því miðaldamyrkri, sem hún er í nú, sbr. orð hv. 7. landsk. þm. við 2. umr. — Ég sé, að á þskj. 695 er flutt brtt. um það, að á eftir orðunum „viðurkenndu kennaraprófi“ í fyrri málsgr. komi: „eða guðfræðiprófi við Háskóla Íslands.“ Mér þykir eðlilegra, að þetta ákvæði standi í 1. eins og ég legg til í brtt. minni. Hins vegar ef meira fylgi er fyrir orðalaginu á brtt. frá hv. þm. S.-Þ. á þskj. 695, get ég fylgt því orðalagi. Því að það verður ekki frambærilegt að neita prestum landsins um að kenna í barnaskólum og bera því við, að þeir séu lakar menntir til þess en yfirborðið af barnakennarastéttinni, a. m. k. enn sem komið er. Það væri því fráleitt að samþ. frv. óbreytt í þessu efni.
Við 17. gr. hef ég lagt til, að hún félli niður. Hún er um að ákveða kennslustundafjöldann. Ég álít þetta vera hreint reglugerðaratriði. En ef á að hafa þetta í l., þá álít ég, að þetta ákvæði eigi heima í þeim bálki launal., sem á að fjalla um skyldur embættismanna, en hefur dregizt úr hömlu að semja, þrátt fyrir loforð um að setja þau í l., en ég álít, að þessi ákvæði eigi ekki heima í þessum l.
Síðan er brtt. við 24. gr. Ég álít, að það sé rétt, að það standi í l., að ráðherra ákveði þóknun til fræðsluráðsfulltrúa og að sú þóknun greiðist úr ríkissjóði. Það var upplýst af hv. frsm., að þetta ætti að greiðast úr sýslusjóði eða bæjarsjóði á viðkomandi stöðum. En nú er vitað, að það hefur verið þrengt að sýslusjóðunum um tekjuöflun, og þeir eru varla færir um nýjar byrðar.
Við 29. gr. hef ég lagt til, að bætt verði aftan við gr. nýrri málsgr., svo hljóðandi: „Eigi er heimilt að veita manni skólastjórastöðu eða kennarastöðu gegn einróma mótmælum viðkomandi skólanefndar. Ég ræddi nokkuð um þetta við fyrri umr. málsins. Ég var þá hvað eftir annað af hv. 7. landsk. þm. lýstur ósannindamaður að þeim dæmum, sem ég tók. Hæstv. menntmrh. sneiddi nokkuð nálægt því sama. Ég lagði gögn fram um það, hversu skólanefndir við gagnfræðaskóla hefðu verið kúgaðar í þessu efni, og tel ég óþarft að skapa það ástand í skólamálunum, að skólanefndir segi af sér, eins og þar var gert sem mótmæli gegn þeim ráðstöfunum, sem komu frá fræðslumálastj., enda þótt hægt væri að bræða sig saman, með því að fá aðra menn til þess að taka að sér þessi störf, gegn loforðum frá ráðh., sem hann vildi þó ekki staðhæfa, að staðið yrði við. Og viðkomandi menn kvíða því, að ekki verði staðið við þau loforð. Tel ég ástæðu til að fyrirbyggja slíkt ástand, sem ég hef nú lýst í skólamálunum, ekki aðeins vegna þessara skóla, sem ég hef áður tilfært dæmi úm, heldur vegna fjölda skóla á landinu. — Ég sé, að um þetta atriði hefur komið fram brtt. frá hv. þm. S.-Þ., um 29. gr. frv. Og ef mín brtt. yrði ekki samþ. um þetta atriði, þá gæti ég einnig fellt mig við það orðalag, sem er á brtt. hv. þm. S.-Þ. um þetta atriði, sem er 6. liður á brtt. 695.
Í tilefni af brtt. á þskj. 694, frá hv. 1. þm. Eyf., vildi ég taka fram, að mér finnst þessi gr. ekki eiga heima í þessum l. Ég skal ekki mikið ræða þetta atriði efnislega, hvort rétt sé, að barnaskólastjórar fái 10. hvert ár frí. Þó vil ég í sambandi við það leyfa mér að benda á, að kennarar almennt í landinu hafa á hverju ári þriggja mánaða frí og sumir hverjir fimm mánaða frí. En ofan á þetta finnst hv. 1. þm. Eyf. nauðsynlegt að gefa þeim frí allt árið 10. hvert ár. (BSt: Aðeins er þetta heimild til þess.) Ég geri ráð fyrir, að hv. 1. þm. Eyf. setji þetta ekki fram eins og blóm fyrir kosningarnar í vor, heldur ætlist til, að þetta verði framkvæmt. En ég bendi á, að slíkt ákvæði sem þetta á hreint og beint heima í þeim kafla launal., sem hér við umr. á síðasta ári var alveg lofað, að gengið skyldi vera frá. Þessi ákvæði eiga heima í þeim l., sem ákveða réttindi og skyldur embættismanna gagnvart þjóðinni. Ég get hins vegar búizt við, að það verði ekki sótt eins fast af embættismannastéttinni, að sett verði lög um skyldur embættismanna við þjóðfélagið, eins og kapp var á það lagt á síðasta ári að koma í gegn launal., sem ákváðu fríðindi þessara manna. En þá er það annarra að reka á eftir því. — Finnst mér þess vegna ekki ástæða til að setja þetta ákvæði í þessi l. Ég mælist þess vegna til þess við hv. 1. þm. Eyf., að hann taki aftur þessa brtt. En geri hann það ekki, vænti ég, að henni verði vísað frá á grundvelli þess, sem ég hef nú sagt. (BSt: En hvað um aðra kennara í þessu efni ?) Alveg eins. Ég álít, að þessi ákvæði um frí 10. hvert ár eigi alveg eins að taka út úr öðrum frv. og fara eins með þau ákvæði eins og ég hef lagt til viðkomandi þessu frv. Ég get hins vegar ekki heldur fallizt á, að þetta sé gert fyrir þjóðina, heldur fyrir kennarana. Skal ég þó ekki fara út í það atriði frekar nú.