08.04.1946
Efri deild: 101. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1475 í B-deild Alþingistíðinda. (2599)

29. mál, fræðsla barna

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Það er aðeins út af ummælum hv. þm. Barð., sem ég ætla að segja nokkur orð. Ég get ekki fallizt á það, að það sé ekki eðlilegt að samþ. brtt. mína á þskj. 694 og setja þetta ákvæði inn í þetta frv., með því að það má telja alveg víst, að það ákvæði um aðra kennara haldist, sem nú er í frv. þar að lútandi. Það yrði þá að fylgjast að, að þessi ákvæði kæmu gagnvart öðrum kennurum inn í sérstök l. um réttindi og skyldur embættismanna, en það er ekki meiri ástæða til þess að fella þetta niður um barnakennarana en aðra kennara, og það verður ekki heldur gert. Ég mun því ekki taka þessa brtt. aftur. Ég álít, að hún sé meinlaus, þar sem þarna er aðeins um heimild að ræða og ríkisstj. getur haft það í hendi sinni á hverjum tíma að gera ekki meira að því að veita barnakennurum þessi frí en ástæður ríkissjóðs leyfa. Þannig að þó að þetta kæmist inn í l., þá væri það miklu hógværara ákvæði en tilsvarandi ákvæði um aðra kennara, sem beint eiga heimtingu á þessu samkv. ákvæðum annars frv.

Að öðru leyti vil ég algerlega mótmæla þeim orðum, sem hv. þm. Barð. hefur leyft sér að hafa um kennarastéttina, þar sem hann talaði um menntunarleysi hennar. Ég veit ekki, hvaðan honum kemur þekking á því að dæma um menntun kennarastéttarinnar. Mér hefur virzt einmitt barnakennarastétt landsins vera sérlega vel mennt stétt og standa fyllilega jafnfætis í því efni öðrum stéttum þessa lands, og þar ekki undan skildir þeir eiginlegu menntamenn. Við vorum svo heppnir Íslendingar, að þegar reglulegur kennaraskóli var hér settur á fót, þá valdist til forstöðu hans ágætismaður. Ég var nemandi hans í æsku, og mér er ánægja af þessu tilefni að taka það fram, að mér finnst það vera bezti maður og merkasti, sem ég hef kynnzt á lífsleiðinni. Og þessi maður mótaði kennaraskólann. Og þar voru fleiri ágætir menn, sem unnu með honum. Og það er alveg áreiðanlegt, að það var svona um kennaraskólann og kennarana þar. Og yfirleitt lengi fram eftir gengu ekki aðrir á þann skóla en þeir, sem höfðu sérstaka löngun til að sinna kennslustarfi, því að ekki var til launanna að slægjast. Launin voru lág, þangað til í fyrra, eins og allir vita. Hvernig kennaraskólinn er nú, skal ég játa, að ég þekki ekki. En mér þykir næsta ótrúlegt, að þar hafi orðið sú breyt., að þessi lýsing hv. þm. Barð. á kennurunum eigi við yngstu kennarana. Ég fullyrði, að hún á ekki við þá eldri kennara yfirleitt, sem gengu á kennaraskólann undir stjórn sr. Magnúsar Helgasonar.