10.04.1946
Efri deild: 103. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1496 í B-deild Alþingistíðinda. (2625)
29. mál, fræðsla barna
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að benda á í sambandi við orlofin, að það er milliþinganefnd starfandi til undirbúnings frumv. til laga um skyldur og rétt embættismanna, og tel ég óviturlegt að taka hér efnislega afstöðu, og hef ég ákveðið að segja nei. Það segir sig sjálft, ef handahófsleyfi er gefið einni stétt, hvaða fordæmi það skapar. Ég vil, að hæstv. ráðh. gefi kennurum við menntaskólann í Rvík ekki frí, og fyrir fjvn. lá, að kennari við þennan skóla hefði 50 þús. krónur í laun fyrir utan 10 þús. kr. fyrir kennslu í háskólanum og þetta með aðstoð hæstv. menntmrh. Fyrst þeir sneiða þetta þykkar ostsneiðar við menntaskólann, þá virðist ekki vera ástæða til þess að veita þeim frí. — Ég ætla ekki að ræða þetta frekar, þar sem forseti hefur tilkynnt flýti á þingstörfum, en ég vildi aðeins segja hv. 1. þm. Eyf., að andi séra Magnúsar Helgasonar svífur ekki yfir hans sálu.