13.04.1946
Neðri deild: 109. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1498 í B-deild Alþingistíðinda. (2641)
29. mál, fræðsla barna
Frsm. (Páll Þorsteinsson) :
Á þessu frv. hafa verið gerðar nokkrar breyt. í Ed. Menntmn. hélt fund um þær í gær og varð ásátt um að láta kyrrt liggja, en hún flytur aftur 2 brtt. á þskj. 792, sem liggja hér fyrir. Í Ed. var breytt ákvæðunum um umráð yfir skólabyggingum, þannig að þau skyldu vera í höndum bæjarstjórnar. Er þar enginn greinarmunur gerður á sveitum og kaupstöðum. Þetta getur gengið í bæjum, en ekki í sveitum, því að þá yrðu 2 eða fleiri hreppsnefndir að koma saman til ráðagerða, og yrði það oft erfitt viðfangs, því að misjafnlega er háttað þessum málum í hinum ýmsu sveitum. Nefndin leggur því til, að í kaupstöðum verði umráðarétturinn í höndum bæjarstjórnar, en í sveitum verði hann í höndum skólanefnda. — Svo hefur nefndin orðið ásátt um að taka aftur upp ákvæðið um yfirlækni, og styðst hún þar meðal annars við álit landlæknis.