22.03.1946
Neðri deild: 93. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1523 í B-deild Alþingistíðinda. (2699)

181. mál, landnám, nýbyggðir og endurbyggingar í sveitum

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Með því að embætti landnámsstjóra er eftir sem áður í frv. þrátt fyrir þá breyt., sem gerð hefur verið á 2. gr., álít ég, að það hefði átt að láta hann hafa það valdsvið, sem honum var upprunalega ætlað. Ég er því mótfallinn að strika þannig nafn hans út og setja nýbýlastjórn í staðinn og segi því nei.

37. gr., svo breytt, samþ. með 20 shlj. atkv. Brtt. 565,28 samþ. með 20:2 atkv.

38. gr., svo breytt, samþ. með 21 shlj. atkv. Brtt. 565,29 samþ. með 18:3 atkv.

39. gr., svo breytt, samþ. með 19 shlj. atkv. 40 gr. samþ. með 20 shlj. atkv.

Brtt. 565,30 samþ. með 18:4 atkv.

41. gr., svo breytt, samþ. með 22 shlj. atkv. Brtt. 565,31 samþ. með 20 shlj. atkv.

42. gr., svo breytt, samþ. með 23 shlj. atkv. Brtt. 565,32 samþ. með 21 shlj. atkv.

43. gr., svo breytt, samþ. með 19 shlj. atkv. Brtt. 565,33.a-g (nýr kafli, verður VIII. kafli, með 7 greinum, 44.-50. gr.) samþ. með 22 shlj. atkv.

— 565,34 (44. gr. fellur niður) samþ. með 25 shlj. atkv.

45.–46. gr. (verða 51.–52. gr.) samþ. með 23 shlj. atkv.

Brtt. 565,35 (ný 47. gr., verður 53. gr.) samþ. með 18:3 atkv.

48. gr. (verður 54. gr.) samþ. með 20 shlj. atkv.

Fyrirsögn frv. og fyrirsagnir kafla þess samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 20 shlj. atkv.