26.11.1945
Neðri deild: 39. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2138 í B-deild Alþingistíðinda. (27)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o. fl.

Fjmrh. (Pétur Magnússon) :

Þetta mál er fullkomlega athyglisvert. Það er óhætt að segja, að þessi útflutningur til Danmerkur er tvenns konar, bæði leyfður og óleyfður. Hinn leyfði útflutningur er þrenns konar. Í fyrsta lagi vörur unnar hér mest úr innlendu hráefni, eins og prjónles o. fl., og ætla ég, að enginn hafi við slíkt að athuga. Í öðru lagi vörur fluttar inn frá Bretlandi, og eru það einkum vörur, sem kaupmenn hafa legið með, og í þriðja lagi vörur fluttar inn frá Bandaríkjunum. Þó hleypur það magn ekki nema á fáum hundruð þús. kr. og með samþykki Bandaríkjastjórnar í gegnum sendiráð þeirra hér. Hér er um að ræða óseljanlega vöru og óhentuga hér, t. d. mun stærsti vöruslattinn vera kápuefni, sem kaupmaður hér hafði legið með í 4 ár. Það skal tekið fram, að enginn tollur hefur verið endurgreiddur af þessum vörum. Ég hygg, að þessi leyfði útflutningur stofni okkur ekki í neina hættu, þar sem hér er aðallega um að ræða vörur, sem henta okkur ekki. Hins vegar hefur það komið í ljós, að allmargir danskir kaupmenn eða umboðsmenn þeirra hafa gengið hér um og keypt vörur, sem okkur eru nauðsynlegar. Það má ekki endurtaka sig, að vörur, sem fluttar eru inn frá Bandaríkjunum og greiddar með dollarainnstæðu okkar, séu svo fluttar til Danmerkur. Þegar fyrstu útflutningsleyfin fengust frá Danmörku, var okkur gert að skyldu að greiða nokkuð af þeim vörum með dollurum, og var þá ekki ákveðið, hvernig við fengjum að greiða skuldir okkar í Danmörku. En með útflutningi á vörum til Danmerkur gátum við sparað dollara: Og nú hefur þetta skuldamál okkar við Danmörku leystst þannig, að Danir hafa fallið frá kröfum sínum um dollaragreiðslu, og megum við treysta, að þær skuldir fáist greiddar í pundum.

Ég held, að mér sé óhætt að lofa Alþingi því, að þessi ólöglegi útflutningur verði athugaður, áður en næsta skip fer, og að slíkt muni ekki endurtaka sig, sem nú hefur gerzt.