28.03.1946
Neðri deild: 97. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1523 í B-deild Alþingistíðinda. (2702)
181. mál, landnám, nýbyggðir og endurbyggingar í sveitum
Frsm. (Jón Pálmason) :
Herra forseti. Landbn. flytur nokkrar brtt. við þetta frv. á þskj. 633, og eru þær að mörgu leyti í samræmi við ýmislegt af því, sem kom fram við 2. umr. málsins. Í nokkrum brtt. er þó gengið eitthvað lengra en um var rætt. Skal ég nú gera grein fyrir efni þessara brtt. nefndarinnar.
Fyrsta brtt. fjallar um kosningu nýbýlastjórnar. Það kom brtt. við 2. umr. frá hv. þm. Mýr. um að kjósa þessa n. í Sþ., og var hún tekin aftur til 3. umr. Nú hefur orðið samkomulag um það í n. að breyta þessu á þá leið, að nýbýlastjórn skuli skipuð 5 mönnum, sem allir séu kosnir í sameinuðu Alþingi, og landbrh. skipi svo formann úr hópi hinna kosnu manna. Með því móti má gera ráð fyrir, að þau sjónarmið, sem mestu eru ráðandi í Alþ. hverju sinni, geti komið fram. Þykir n. það sanngjarnt, þar sem verksvið þessarar n. er aukið frá því, sem verið hefur.
Þá eru tvær brtt. við 14. gr. Önnur þeirra er að nokkru leyti endurtekning á brtt., sem n. flutti við 2. umr., en nýju ákvæði bætt inn í hana til að tryggja, að það komi aldrei fyrir, að út á nokkra byggingu verði lánað hærra en nemur 75% af kostnaðarverði bygginganna. En eins og till. var flutt, var ekki með öllu óhugsandi, að það gæti orðið hærri lánsheimild á ýmsum byggingum, ef ekkert lán hvíldi á jörðinni. Þá er b-liður þessarar brtt. einnig breyt. á 14. gr., og er það nýtt ákvæði og þýðingarmikið atriði fyrir menn, sem eru ábúendur á opinberri eign. Samkv. erfðaábúðarl. er heimilt að veðsetja þær jarðir fyrir byggingarlánum allt að 60% af fasteignamati jarðarinnar. En eins og nú er komið, er það með öllu ófullnægjandi. Þess vegna flytur n. þessa brtt. Gert er ráð fyrir, að það verði hægt að lána út á þessar jarðir eins og aðrar til byggingarframkvæmda, ef landbrh. veitir samþykki til þess.
3. brtt. n. er um það, að heimilt sé að verja fé til stofnunar einstakra nýbýla, þar sem svo stendur á, að félagsræktun verður ekki komið við. Sé slík greiðsla miðuð við meðalkostnað við stofnun býlis í byggðarhverfi.
4. brtt. n. er á þá leið, að aftan við 43. gr. komi nýtt ákvæði varðandi forkaupsrétt. Í fyrsta lagi það, að þegar svo stendur á, að Byggingarsjóður eða sveitarstjórn nota forkaupsrétt, þá víkja þau ákvæði, sem eru í gildandi l. um forkaupsrétt jarða, þannig að ábúandi missir sinn forkaupsrétt, þegar svo stendur á. Þetta mun ekki koma til greina varðandi byggðarhverfi, vegna þess að þær jarðir munu ekki verða seldar undir neinum kringumstæðum, ef ábúendur vilja vera. En hins vegar er þetta ákvæði, eins og greint var frá við 2. umr., til tryggingar því, að ekki sé hægt að fara á bak við þessi l. og græða á sölu viðkomandi jarðar. Í þessari brtt. er enn fremur ákvæði um það, að ef Byggingarsjóður eða sveitarstjórn notar þennan forkaupsrétt samkv. ákvæðum l., þá er þeim aðilum óheimilt að selja eða leigja viðkomandi jörð fyrir hærra verð eða leigu en samsvarar kaupverðinu. Telja nm. það ákvæði mjög sanngjarnt, svo að ekki sé hætta á því, að hlutaðeigandi stofnanir fari að gera slík jarðakaup að gróðavegi.
5. brtt. n. er um það, að í stað þess að l. gangi í gildi strax, eins og gert er ráð fyrir í frv., skuli þau ganga í gildi ekki fyrr en 1. jan. 1947. Breyt. er byggð á því, að það er ekki samkv. frv. gert ráð fyrir því, að fjárframlög verði veitt fyrr en á næsta ári, og því þýðingarlaust að láta l. taka gildi fyrr en um næstu áramót. Afleiðingin af því yrði sú, að kosning nýbýlastjórnar samkv. þessu frv., ef að l. verður, yrði að fara fram á næsta þingi fyrir áramót.
6. brtt. er aðalbreyt. n. Hún er um það að setja inn í l. bráðabirgðaákvæði, sem kveður á um það, hvernig fara skuli að meðan breytingin er að koma fram frá því, sem verið hefur, eða þangað til skipulagið er ákveðið, sem frv. gerir ráð fyrir. Í fyrsta lagi er það, að þeir bændur, sem hafa rétt til styrks og byrjaðir eru að byggja íbúðarhús fyrir árslok þessa árs, geta valið um, hvort þeir vilja fá aðstoð eftir hinum eldri 1. eða koma undir ákvæði þessara l. Þetta er nauðsynlegt ákvæði, vegna þess að það eru talsvert margir menn í landinu, sem þannig er ástatt fyrir, að þeir eru annaðhvort byrjaðir að byggja á jörðum sínum eða eru í undirbúningi með það og verða að fást við þær framkvæmdir á þessu sumri. Það er nauðsynlegt, að þessir menn hafi rétt til að velja, hvorn kostinn þeir taka. Þá er í öðru lagi ákveðið í þessu bráðabirgðaákvæði, að ef einhver maður, sem stendur að byggingarframkvæmdum, hefur fengið nokkurn hluta af byggingarstyrk, þá geti hann engu að síður komizt undir ákvæði þessara l. með því að endurborga þann styrk, sem hann hefur tekið á móti. Í þriðja lagi er í þessari sömu brtt. ákvæði um það, að stjórn Byggingarsjóðs sé heimilt, ef nýbýlastjórn mælir með því, að veita þeim mönnum, sem staðið hafa í byggingarframkvæmdum á árunum 1943–1946, viðbótarlán til íbúðarhúsa. Það er vitað, að íbúðarhúsabyggingar á þessu tímabili hafa verið ákaflega dýrar og heimildin til þess að fá lán er bundin við 9000 kr. Er það auðvitað ófullnægjandi fyrir mjög marga menn. Þess vegna teljum við það nauðsyn, að sjóðsstjórnin, að fengnum tilmælum hjá nýbýlastjórn, hafi heimild til að hækka lán til þessara manna frá því, sem verið hefur. Þótt þessir menn, sem þannig er ástatt um, væru ekki búnir að taka nú neitt lán, þá væri samkv. þessu ákvæði heimild til að veita þeim hærra lán en 9000 kr. Þess vegna gætu þeir komizt undir það ákvæði eftir því, sem sanngjarnt þætti og hér um ræðir í 14. gr. þessa frv. Í síðasta lagi er svo það, að allar ákvarðanir samkv. þessum bráðabirgðaákvæðum skulu afgreiddar fyrir 1. júlí 1947. Ég vil taka það fram og bið hæstv. forseta að athuga það, að inn í þetta ákvæði hefur slæðzt prentvilla. Þegar það fór frá okkur í landbn., þá stóð þarna, eins og vera ber: .... samkvæmt þessum bráðabirgðaákvæðum. En þegar þskj. kom úr prentun stóð: .... samkv. þessum bráðabirgðalögum. Ég sá ekki ástæðu til að láta prenta upp þskj., en vil biðja forseta að athuga það, þegar frv. verður endurprentað, að þetta verði lagað.
Ég fjölyrði svo ekki meira um þetta, en tek brtt. frá hv. þm. V.-Húnv. til nánari yfirvegunar og athugunar, er hann hefur mælt fyrir þeim.