28.03.1946
Neðri deild: 97. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1525 í B-deild Alþingistíðinda. (2703)
181. mál, landnám, nýbyggðir og endurbyggingar í sveitum
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Við 2. umr. þessa frv. benti ég á, að skv. þessu frv. væru lagðar kvaðir á bændur, sem fá aðstoð til stofnunar nýbýla eða endurbygginga, og að þær kvaðir væru hliðstæðar þeim, sem aflétt var fyrir skömmu á þessu þ., með afnámi 17. gr. jarðræktarl. og tveggja gr. úr l. um Byggingar- og landnámssjóð.
Frsm. landbn., hv. þm. A.-Húnv. (JPálm), gerði þá athugasemdir við þessi ummæli mín, án þess þó að hrekja nokkuð af því, sem ég sagði um þetta. Ég frestaði að svara honum þá, til þess að flýta fyrir því, að frv. kæmist til 3. umr. — Ég sé ekki ástæðu til að eyða löngum tíma í umr. um þetta, vil þó gera nokkurn samanburð á eldri ákvæðum, sem numin voru úr l. á þessu þingi, og ákvæðum þessa frv.
Samkv. eldri l. var kaupsamningur um nýbýli, sem styrkur hafði verið veittur til, og um fasteignir, sem skuldir hvíldu á við byggingarsjóð, við sölu á þessum eignum, ekki gildur nema með árituðu samþykki nýbýlastjórnar eða stjórnar byggingarsjóðs. Þetta sama ákvæði er nú tekið upp í 43. gr. þessa frv. Þar á er enginn munur.
Samkv. eldri 1. var takmarkað, fyrir hve hátt verð mátti selja nýbýli. Var þar aðallega miðað við fasteignamat. — Í þessu frv. er ákvæði um, að við sölu nýbýla skuli byggingarsjóður hafa forkaupsrétt að þeim fyrir kostnaðarverð að frádreginni fyrningu. Engin slík ákvæði um forkaupsrétt byggingarsjóðs hafa áður verið í lögum.
Eftir fyrirmælum eldri l. um aðrar jarðir en nýbýli, sem lán hvíldu á við byggingarsjóð, var takmarkað, hve hátt verð mátti taka fyrir þær við sölu. Líka var ákveðið, hvað háa leigu mátti taka eftir þær. Þó var mögulegt fyrir eigendur að selja fyrir hærra en hið ákveðna verð, gegn því að borga upp áhvílandi lán og endurgreiða byggingarstyrk, ef veittur hafði verið.
Samkv. frv., sem hér liggur fyrir, hefur byggingarsjóður forkaupsrétt að jörðum, sem veðbundnar eru sjóðnum, þegar þær eru seldar. Ekkert ákvæði um slíkan forkaupsrétt var í eldri lögum.
Af þessu er ljóst, að umráðaréttur jarðeigenda yfir nýbýlum og öðrum jörðum er meira skertur með ákvæðum þessa frv. en hinna eldri l. Kem ég að þessu nánar, þegar ég ræði um brtt. mínar.
Um 17. gr. sálugu, sem var í jarðræktarl., vil ég segja það, að það eru vitanlega blekkingar, sem haldið hefur verið fram fyrr og síðar, að tilgangurinn með henni hafi verið sá að ná jarðeignum bænda smám saman undir ríkið. Ekkert slíkt var í þeirri grein. Þarf ekki frekar að svara því, sem hv. þm. A.-Húnv. sagði um ríkisátak í jörðum í þessu sambandi. — Hins vegar er það svo með forkaupsréttarákvæðin í 30., 44. og 43. gr. þessa frv., að verði þau samþ. og notuð, er hægt eftir þeirri leið að ná öllum nýbýlum og mörgum öðrum jörðum undir ríkið, þegar sala á þessum eignum á sér stað. Ég er ekki með þessu að segja, að sá sé tilgangurinn, a. m. k. ekki hjá öllum, sem að frv. standa, en þannig gæti þetta orðið, ef einhverju sinni væri vilji hjá þeim, sem með framkvæmdirnar fara, til að beita l. þannig.
Ég flyt hér nokkrar brtt. á þskj. 647. Sú fyrsta er við 6. gr. frv. Samkv. 6. gr. er heimilt að taka jarðir, sem ekki eru í sjálfsábúð. Brtt. mín er, að á eftir orðinu „sjálfsábúð“ á tveim stöðum í gr. komi: eða erfðaábúð. Ég tel rétt, að sama gildi um erfðaábúð og um sjálfseignarábúð.
Þá er 2. brtt. Við 17. gr. frv. vil ég bæta nýrri málsgr., svo hljóðandi: Heimilt er nýbýlastjórn að veita lántakanda óafturkræft framlag úr sjóðnum, er samsvari þeim stuðningi, er hann yrði aðnjótandi með vaxtalækkun á láni því, sem hann gæti fengið samkv. 14. gr., miðað við venjulegan lánstíma og að lækkun ársvaxtanna nemi 2%. Þegar slíkt framlag er veitt, skal lántakandi greiða 4% ársvexti af því láni, er hann fær hjá sjóðnum, og má þá lánveiting til hans eigi nema meiru en 50% af kostnaðarverði þeirra bygginga, sem lánið er veitt til. — Vextir eru nú 4%, og nemur því lækkun ársvaxtanna tveimur af hundraði Ég vil biðja hv. þm. að athuga, að samkv. minni tillögu er ekki um aukin útgjöld að ræða fyrir ríkið. Aðeins er lagt til, að stuðningurinn sé veittur í öðru formi þeim, sem heldur kjósa nokkurt óafturkræft framlag og lægra lán með hærri vöxtum, heldur en hærra lán með lægri vöxtum. Fyrir byggingarsjóðinn er þetta engu lakara.
3. brtt. mín snertir ákvæði 30. gr. um forgangsrétt byggingarsjóðs að nýbýlum, sem seld eru. Við greinina vil ég láta bæta : Þetta gildir þó ekki, ef eigandi býlis selur það foreldri sínu, systkini, barni, stjúpbarni, tengdabarni, kjörbarni, fósturbarni eða barni þeirra, enda sé söluverðið eigi hærra en kostnaðarverð að frádreginni fyrningu og kaupandi gerist þar sjálfur ábúandi. — Eins og sjá má, þá vil ég láta bæta hér við ákvæði, sem takmarki forkaupsrétt sjóðsins. Ég tel of langt gengið í þá átt í frv. að skerða umráðarétt eigenda, og till. mín er um það, að þeir hafi rétt til að selja nánustu ættingjum eða venzlamönnum. Þetta er í samræmi við ákvæði ábúðarlaganna frá 1933.
4. brtt. mín er við 43. gr. Á eftir orðunum „nema um erfðaskipti sé að ræða“ komi: eða sölu til einhvers þess aðila, sem nefndur er í 2. málsl. 30. gr. Þessi brtt. er um sama efni og 3. brtt. og þarf ekki að skýra það nánar. Varatill. kemur til atkvæða, ef 3. brtt. verður felld. Ég tel það ekki verjandi að þrengja svo að jarðeigendum, að þeir geti ekki selt sínum nánustu, ef þeir vilja taka jarðirnar til ábúðar.
Þrátt fyrir þær breyt., sem gerðar voru á frv. við 2. umr., þá eru sum atriðin ekki nógu ljós. Vil ég leyfa mér að beina nokkrum fyrirspurnum til frsm. landbn. Fyrsta spurningin er í sambandi við 9. gr. frv. Þar segir: „Skylt skal landnámsstjóra, ef óskir koma fram, að gera samning við bæjar- eða sveitarstjórnir um það að taka að sér frumræktun lands fyrir hlutaðeigandi bæjar- eða sveitarfélög.“ Síðan segir: „Þau bæjar- eða sveitarfélög, sem hér eiga hlut að máli, skulu tryggja nægilegt fé til framkvæmdanna. Landnámsstjóra skal skylt að taka sem greiðslu væntanlegan jarðræktarstyrk eins og Búnaðarfélag Íslands áætlar hann.“ Hvernig ber að skilja þetta ákvæði? Er það svo, að bæjar- og sveitarfélögin eigi að leggja fram fé til þessara framkvæmda?
Önnur spurningin er varðandi 10. gr., þ. e. sem segir um búnaðarsamböndin og ræktunarfélögin. Ég vil spyrja: Getur þetta ekki eins orðið á landi, sem er í einkaeign, sbr. brtt. n. við 36. gr.? Ef svo er, að þetta geti átt við um land, sem er í einkaeign, þurfa þá bændur að borga fyrir þessar undirbúningsframkvæmdir? Þetta er mér hvorugt ljóst af frv.
Næst er það 28, gr. Segir þar í upphafi málsgr.: „Þegar ákveðið hefur verið, að byggðarhverfi skuli reist á landi, sem ríkið hefur áður numið, skal landnámsstjóri láta rækta 5 ha túns og reisa íbúðarhús og nauðsynlegustu peningshús, hlöður og verkfæraskemmur þeirra býla, sem þar eiga að rísa.“ Hvort þetta er fyrir hvert býli eða allt hverfið, kemur ekki glöggt fram, og í öðru lagi: Er tekið gjald af bændum fyrir þá ræktun, annaðhvort í einu lagi eða með einhverju árgjaldi?
Og þá er það viðvíkjandi 35. gr. frv. Síðast í þeim kafla segir: „Þeir, sem bundizt hafa félagssamtökum um stofnun byggðarhverfisins, skulu eiga kost á að undirbúa landið til ræktunar og byggðar samkv. lögum þessum að jöfnum kostnaði og hægt er að fá slíkt gert á annan hátt eða fá atvinnu við landnámið, eins og því verður bezt við komið. Þegar þeim undirbúningi er lokið, skal þeim fengið landið í hendur til byggðar.“ Ég vil spyrja: Er þarna miðað við þessa 5 ha ræktun á býli, og hver ber kostnaðinn? Ég vil enn fremur spyrja: Hver er stuðningurinn, ef bændur eiga landið sjálfir? Þurfa þessir bændur að borga til ríkisins fyrir þetta, og á hvern hátt?
Að síðustu er það við 38. gr. Þar segir: „Sá, sem reisa vill nýbýli og hefur tryggt sér til þess umráðarétt á landi, sendi landnámsstjóra umsókn um, að hann fái heimild til að reisa býli, er njóti þeirra hlunninda, er lög þessi veita. Landnámsstjóri lætur þá athuga alla aðstöðu til stofnunar nýbýlisins og úrskurðar, hvort hún sé nægilega góð til þess að stutt skuli að því, að býlið skuli reist.“ Umráðarétturinn er með tvennu móti, annaðhvort tryggður með leigu eða þannig, að ábúandi eigi landið. Á hvern hátt kemur hér stuðningur ríkisins, ef landið er í einkaeign? Þetta er atriði, sem hv. form. landbn. skýrði ekki nógu vel. Ákvæði frv. eru ekki nógu skýr um þá bændur, sem eiga sjálfir landið og rækta 5 ha lands. Þeir ættu að fá stuðning ekki minni en veittur er til ræktunar lands, sem er ríkiseign. Ég tel þetta ekki koma nógu greinilega fram í frv., og vil beina því til hv. landbn., hvort hún sæi ekki ástæðu til að gera fyrirmæli frv. gleggri að þessu leyti.