12.04.1946
Efri deild: 105. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1535 í B-deild Alþingistíðinda. (2725)

181. mál, landnám, nýbyggðir og endurbyggingar í sveitum

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson) :

Herra forseti. Það er mjög skammt síðan þessu frv. var vísað til landbn. og síðan það kom í þessa hv. d. Og hefði tími verið til, hefði verið mjög æskilegt, að n. hefði getað athugað þetta frv. ýtarlega. En þetta er stórmál og nýsmíði að mörgu leyti og má búast við því, að það verði endurskoðað mjög bráðlega og breyt. þá gerðar.

Landbn. var sammála um, að hér væri um svo stórt og merkilegt mál að ræða, að enda þótt hún hefði ekki haft nógu langan tíma til þess að athuga það, þá væri ekki fært að tefja það þannig, að ekki væri þá víst um, að það næði fram að ganga sem l. frá þessu þingi. Þess vegna var það, að ekki vannst fullkominn tími til þess að setja fram brtt. frá n. hönd, en því var þannig varið með ýmsar breyt., sem hefðu átt að koma fram, að nm. voru ekki sammála um þær og áskildu sér rétt til þess að bera fram brtt. við frv. og fylgja brtt., sem fram kynnu að koma. En yfirleitt var n. sammála um að mæla með samþykkt frv.

Hér liggja fyrir prentaðar brtt. á þskj. 776 frá 3 nm. um breytingar á frv., en um það atriði var ekki tekin nein ákvörðun í n., og skal ég því að svo stöddu máli ekki fara frekar út í það að ræða þær brtt., þar sem líka nm. hafa alveg óbundnar hendur eins og ég sagði áðan.

Ég hef leyft mér að bera hér fram skriflega brtt., af því að ekki vannst tími til að fá þær prentaðar áður en málið yrði tekið fyrir, en mér þykir réttara að láta þær koma fram við 2. umr. Flestar þessar brtt. eru aðallega til leiðréttingar og skýringar á frv. og að sumu leyti til sjálfsagðra endurbóta á því. Þessar brtt. eru 3, og ég vil leyfa mér að skýra þær um leið og ég afhendi hæstv. forseta þær, með leyfi hæstv. forseta.

1. brtt., sem ég ber fram, er við 9. gr. frv. og er þannig, að á eftir orðunum „semja við búnaðarsambönd“ bætist: stjórnir félaga, sem hafa sett sér jarðræktarsamþykktir. Og það hafa þeir játað við mig 1 eða 2 nm. landbn. Nd., að þeim hafi láðst að athuga þetta. Þannig er því farið, að innan umdæmis búnaðarsambandanna hafa nú risið upp sjálfstæð sambönd, sem hafa, án þess að vera í raun og veru nokkuð háð búnaðarsamböndum, ræktunarframkvæmdir og hafa verið löggilt af Búnaðarfélagi Íslands og starfað alveg sjálfstætt. Og þá eru samböndunum lítið sem ekkert viðkomandi þær framkvæmdir, sem þau félög, sem standa að þessum jarðræktarsamþykktum, gera. Ef hv. þm. hafa hjá sér frv., þá kemur sá kafli 9. gr., sem brtt. hljóðar um, til með að líta út þannig: Nýbýlastjórn skal, ef óskir koma fram um það, semja við búnaðarsambönd, stjórnir félaga, er hafa sett sér jarðræktarsamþykktir, eða bæjar- og sveitarfélög um að taka að sér frumræktun lands fyrir ákveðið gjald.“ Ég geri ráð fyrir því, að um þetta atriði þurfi ekki að deila.

2. brtt. mín er við 11. gr. frv., en þar stendur, um skipun manna í hverri sýslu, með leyfi hæstv. forseta: „Nýbýlastjórn skipar þriggja manna n. í hverri sýslu. Skulu tveir þeirra tilnefndir á fulltrúafundi hlutaðeigandi búnaðarsambands, og skal þar hafa hlutfallskosningu um val þeirra, ef óskað er“ o. s. frv. Þarna er ákvæði um það, hvernig sambandið eigi að velja mennina og hvernig eigi að fara að því, en til skýringar er reynt að gera það eins réttlátlega og hægt er, ef á annað borð verður nokkur ágreiningur um það. Annars á það ekki að tefja, þó að hlutfallskosningar séu þarna fyrirskipaðar. Ef samkomulag er um það á fulltrúafundi, þá getur hver flokkur skilað sínum lista með einum manni á, og þá er allt klappað og klárt. Annars verður að ráða þar afl atkv., ef ekki er um annað að ræða.

En þessi 3. brtt., sem ég hef hér komið fram með, er við 19. gr. Og sú brtt. kemur fram vegna þess, að ekki eru nógu greinileg ákvæði um það, hvernig á að fara með innheimtu, ef óskil verða á lánsfé sjóðsins. Þá gr. hef ég leyft mér að orða um og hef þar tekið til fyrirmyndir orðalag, sem er í veðdeildarl. um, hvernig innheimta skuli fara fram, og er þetta gert til þess að létta innheimtu og framkvæmd hennar og gera hana kostnaðarminni bæði fyrir sjóðsstjórnina og eins fyrir þá, sem verða fyrir því óhappi að lenda í vanskilum og innheimtu verður að gera hjá, þannig að til uppboðs kemur. Þessi gr. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta, eftir minni till.: „Þegar lán eru komin í gjalddaga, hefur Byggingarsjóður heimild til þess að láta selja veðið við opinbert uppboð án undanfarandi dóms, sáttar eða fjárnáms eða leggja sjóðnum það út til eignar, ef þörf er á.“ Þetta hygg ég, að geti orðið báðum aðilum til hagræðis, bæði skuldareiganda og skuldara.

Ég leyfi mér svo að afhenda hæstv. forseta þessar brtt.