16.04.1946
Efri deild: 108. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1752 í B-deild Alþingistíðinda. (2746)

172. mál, nýbyggingar í Höfðakaupstað

Bernharð Stefánsson:

Ég hef skrifað undir nál. með fyrirvara, að sumu leyti vegna almennra efasemda um réttmæti þessa máls og að sumu leyti vegna þess, að ég vildi hafa frjálsar hendur til að bera fram eða vera með brtt. Þegar málið var til umr. í n., vildi ég fá það tekið fram í frv., að samráð skyldi haft við viðkomandi hreppsnefnd um framkvæmdirnar, og mun ég nú bera fram skrifl. brtt. um þetta, þannig að á eftir „nýbyggingarráð“ í 3. gr. komi: hreppsnefnd Höfðahrepps. Þetta raskar ekki frv. sjálfu eða hindrar á nokkurn hátt framkvæmdir. Mér finnst þessi till. svo sjálfsögð, að ég trúi ekki öðru en hún nái samþykki.

Um frv. að öðru leyti vil ég fátt segja. Hv. frsm. sagði, að hér væri um að ræða merkilega tilraun, og get ég verið honum sammála um það. Einnig get ég trúað því, að hægt sé að koma upp myndarlegum bæ, ef til þess er fengið nóg fé úr ríkissjóði. En það er hætt við, að það komi á daginn, sem hv. þm. Barð. gat um, að fleiri muni vilja verða aðnjótandi þessara hlunninda. Vera má, að æskilegt sé að gera þarna tilraun með það, hvernig sovétskipulagið reynist. Þó er sá galli á, að stofnféð þarf að koma allt frá ríkinu.

Út af hugleiðingum hv. þm. Dal. um feitu kýrnar skal ég ekki segja mikið, en mér sýnist nú, að hæstv. ríkisstj. og Alþ. hagi sér að svo mörgu leyti öðruvísi en Jósef gerði, þegar hann safnaði korninu í hlöður. Hér er keppzt um það að eyða því jafnóðum, sem til fellst, svo að sýnilegt er, að hér vantar einhvern Jósef. (MJ: Við ættum kannske að fá Jósef Stalin lánaðan?) Ég býst við, að ef Jósef Stalin hefði stjórnað Íslandi, þá hefði hann ekki sýnt það gáleysi, þegar ríki hans var búið að eignast af utanaðkomandi ástæðum miklu meiri auð en nokkurn dreymdi um, að eyða því út um hvippinn og hvappinn áður en það væri fyllilega athugað, hvernig því yrði bezt varið, því að hvaða skoðun sem maður hefur á þeim manni, segir það sig sjálft, að hann er mikill og vitur maður. (Fjmrh.: Hvað hefði hv. þm. gert í Jósefs sporum?) Ég hefði beðið með sumt af því, sem nú er verið að ákveða að verja fé til. Það hefði ég gert, ef ég hefði átt að stjórna fjármálum þjóðarinnar. Hv. þm. Barð. var að tala um, að þetta mál væri afráðið. Það hefur ekki gerzt í fjhn. d., heldur á öðrum stað. Ég býst við, að honum sé kunnugt um það, hvaða staður það hafi verið. Það er ekki neitt sérstakt um þetta mál. Það hefur verið svo á þessu þingi, ekki sízt í þinglokin, að málunum hefur verið ráðið til lykta utan þingsins, og ég hugsa, að því máli, sem verið var að afgreiða áðan út úr d., hafi verið ráðið til lykta án þess að um það hafi verið fjallað á þinglegan hátt.

Ég sé svo ekki ástæðu til að lýsa nánar skoðun minni á þessu máli. Að öðru leyti mun ég sýna með atkv. mínu, hvernig ég lít á málið.