17.12.1945
Neðri deild: 55. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1549 í B-deild Alþingistíðinda. (2776)

141. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Það er í sjálfu sér óþarfi að ræða þær aths., sem fram hafa komið um þetta mál, síðan ég talaði hér síðast. Málið þarf að komast til n., svo að ég vil ekki tefja það.

Út af ummælum hv. þm. V.-Húnv. (SkG) vil ég láta þess getið, að hvorki einn né annar þarf að óttast, að nýbyggingarráð muni torvelda fyrir mönnum að fá lán úr fiskveiðasjóði. Nýbyggingarráð hefur fram að þessu verið mönnum til fyrirgreiðslu í þessu efni, en ekki hindrunar.

Ég skal taka það fram, að orðalag setningar þeirrar, sem þm. minntist á, er framkallað vegna ákvæða í 2. gr. l. um nýbyggingarráð, sem er um það, að tekið sé fram, hvar tækin séu staðsett. En síðan nýbyggingarráð tók til starfa, hefur það í öllum tilfellum veitt þeim, sem til þess hafa leitað, margháttaða aðstoð, og þyrfti rík ástæða að vera fyrir hendi til þess að það breytti á annan veg.

Það var rétt af hv. þm. V.-Húnv. að beina þessari aths. til nefndarinnar. Mun n. taka hana til meðferðar.

Hv. þm. Borgf. (PO) varpaði fram fyrirspurn um upphæð lánanna. Það er um að ræða ¾ í viðbót við þá upphæð, sem viðkomandi áður hefur fengið. Það er meira vit í, ef lánið kemur í viðbót við það, sem áður er komið. Bæði þetta og eins hitt, hvort sveitar- eða bæjarfélög eigi að njóta sömu kjara, verður tekið til athugunar í sjútvn.

Hv. 2. þm. S.-M. (EystJ) benti á, að hér væri um að ræða hlunnindavexti til handa lántakendum, og er ekki því að neita, að svo sé. En við eigum báðir sæti í n. og getum borið okkur saman á fundum hennar.