27.03.1946
Neðri deild: 96. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1550 í B-deild Alþingistíðinda. (2781)

141. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins

Frsm. meiri hl. (Jóhann Jósefsson) :

Það er liðinn langur tími frá því að byrjað var að ræða þetta mál. Sjútvn. hefur klofnað um afgreiðslu þess, og hafa bæði meiri og minni hl. gert grein fyrir sinni afstöðu til málsins á þskj. 623 og 625.

Þetta frv. er samið af nýbyggingarráði og sent ríkisstj. til athugunar, en lagt hér fram af atvmrh, ásamt grg. Kunnugt er, og sérlega hv. þm., að samstundis og frv. þetta var fram komið, hafði stjórn Landsbankans mikið út á það að setja, og liggur hér fyrir bréf um þetta efni, sem ég hirði ekki að rekja.

Sjútvn. tók málið til meðferðar sem hvert annað og sátu menn þar yfir brtt. við frv. En allt var frv. miðað við það, að fiskveiðasjóður yrði efldur og hann hefði alla þá lánastarfsemi, sem um ræðir í frv., með höndum. Aths. kom frá 2. þm. S.-M., þess efnis, að hann væri ekki fylgjandi fjáröflunarleið þeirri, sem frv. gerði ráð fyrir, en að öðru leyti kvaðst hann því hlynntur, að slík lánastarfsemi kæmist á fót, sem frv. miðaði að. Eftir 4 vikna meðferð í sjútvn. var komið með till. sem samkomulagstill. við stjórn Landsbankans. Þessi till. breytti ekki markmiði frv., eða fjáröflunarleiðinni, heldur var höfuðbreyt. fólgin í því, að þessi umrædda lánsstofnun yrði utan við fiskveiðasjóð og aðeins deild úr Landsbankanum. Ýmsum hefur fundizt erfitt að sætta sig við þessa íhlutun Landsbankastjórnarinnar, þó að hún sé að sumu leyti réttmæt.

Þá hefur komið mjög til umr., hvar hið eiginlega vald sé, sem ráði yfir fjár- og bankamálum þjóðarinnar. Almennt hefur ætlunin verið, að það vald lægi í höndum Alþingis sjálfs. Þegar um stórmál sem þetta er að ræða, að afla fjár til nýsköpunarinnar, sem nú er hafin í nær öllum sýslum og bæjum, þá lítur meiri hl. svo á, að ekki beri að stofna málinu í hættu með því að halda fast við þá skipun, sem frv. gerði ráð fyrir í fyrstu, enda má segja, að Landsbankinn sé svo virðuleg stofnun, að hann muni vera fær um þessa framkvæmd. Hitt er annað mál, að það var í upphafi ætlazt til, að fiskveiðasjóður hefði þessa starfsemi með höndum, og má geta sér þess til, að meðal alþm. sjálfra hefði ekki verið ágreiningur um það.

Nýbyggingarráð samdi þetta frv., og þar var ekki neinn ágreiningur, en hér hefur orðið ágreiningur. Meiri hl. sjútvn. telur tilgang frv. svo mikilsverðan, að hann vill fallast á þessa breyt., til þess að ákvæði frv. nái fram. Ef ekki næðist samkomulag um þetta atriði, þýddi það hrein vandræði og öngþveiti fyrir þá menn og þau bæjarfélög, sem lagt hafa í dýr fyrirtæki með viljayfirlýsingu Alþingis og loforð um hjálp og aðstoð, sem þetta frv. gerir ráð fyrir. Meiri hl. sjútvn. vill ekki svíkja þessa menn og hefur því fallizt á þær breyt., sem stjórn Landsbankans hefur sætt sig við: Minni hl. hefur gert grein fyrir afstöðu sinni í sérstöku nál., og fer ég ekki út í það, það mun verða rætt af honum sjálfum. Ég segi ekki, að hann sé óeðlilegur, en hitt vil ég álíta, að heppilegra hefði verið, að öll sjútvn. hefði fallizt á tillögur meiri hl. Þegar litið er á þær breyt., sem óskað er eftir, hagga þær ekki tilgangi frv., og það álít ég aðalatriðið:

Eftir að sjútvn. fékk þessar till. voru þær ræddar og bræddar í nefndinni. 2. þm. S.-M. ritaði undir álit meiri hl. með fyrirvara, vegna þess að hann vildi hafa aðrar fjáröflunarleiðir, en mun þó vera til með að fylgja málinu, þó að hans leið verði ekki farin.

Ég veit, að um það eru mjög skiptar skoðanir, hvort ekki sé nauðsynlegt að hafa það tryggt, hversu háa vexti seðladeildin megi reikna af því fé, sem hún leggur fram í þessu skyni og nýbyggingarráð hafði hugsað sér, að yrði lagt fram til fiskveiðasjóðs, en nú samkv. hinum nýju till. á að leggja fram til stofnlánadeildar Landsbankans. — Annað atriðið, sem hér kemur nýtt, er það, að eigendur nýbyggingarsjóða eru skyldaðir til að láta fé sitt inn í þessa lánsstofnun, m. ö. o. að lánsstofnuninni sé gert mögulegt að veita lán sumpart af eignum þeirra, sem eiga fé í nýbyggingarsjóðum. — Þá er í till. meiri hl. n. nokkur breyt. gerð á upptalningu í 3. gr. frv., að því er snertir framkvæmdir, sem lána má til. Þarna eru minni hl. og meiri hl. n. nokkuð á öndverðum meiði um einstök atriði, þar sem hv. minni hl. samkv. till. sínum á þskj. 626 vill hafa aðganginn að þessum lánum nokkru þrengri í ýmsum tilfellum en meiri hl. leggur til. Aðalágreiningsefnið er varðandi dráttarbrautir og skipasmíðastöðvar. Hv. minni hl. sleppir þeim í sínum till., nema um sé að ræða eignir félaga útvegsmanna og fiskimanna eða félaga, sem allur þorri útvegsmanna á hverjum stað stendur að. Meiri hl. n. lítur svo á, að hér sé þrengt of mikið að einstaklingum, sem kunna að eiga eða vilji ráðast í byggingu dráttarbrauta. Það er t. d. vitað, að á svæðinu, sem verður innan hinnar fyrirhuguðu landshafnar í Njarðvíkum, eru áhugamenn að koma upp dráttarbraut, sem þeir hafa hugsað sér að eiga og kosta sjálfir, og munu þeir t. d. verða útilokaðir frá að geta fengið lán úr hinni nýju lánsstofnun til þessara framkvæmda, ef brtt. hv. minni hl. verða samþ. Sama er að segja um fyrirtæki, sem eru að koma upp dráttarbrautum við Reykjavíkurhöfn og utan hennar, þau yrðu útilokuð frá því samkv. till. hv. minni hl. Má vel vera, að víða sé líkt ástatt. Meiri hl. þótti nægileg trygging í þessum efnum að kveða svo á, er segir í 3. brtt. hans á þskj. 623, að til slíkra lána — þ. e. a. s. til annarra lána en beint út á skip — skuli félög útvegsmanna og fiskimanna hafa jafnan forgangsrétt.

Aðrar brtt. meiri hl. skýra sig flestar sjálfar. Þær miða flestar að því að samræma frv. við þessa nýju tilhögun, en nýlega hefur verið útbýtt brtt. frá hv. minni hl., sem kann að snerta nokkuð deiluatriði, þ. e. brtt. hv. 2. þm. S.-M: (EystJ) og hv. 6. landsk. þm. (LJós) á þskj. 631, þar sem um er að ræða takmörkun á því, hvað hægt er að fá lánað fyrir þá, sem eiga fé í nýbyggingarsjóðum. Ég skal ekki gera þessa brtt. sérstaklega að umræðuefni, það má sjálfsagt tilfæra margt með henni og ef til vill á móti. Það var svipuð hugsun uppi í nýbyggingarráði á frumstigi málsins og raunar í þeim till. þess, sem sendar voru hæstv. ríkisstj., en þær voru hins vegar felldar í viðkomandi ráðuneyti og eru því ekki á þskj. 315, sem loks var lagt fyrir hæstv. Alþ.

Ég ætla að láta þetta nægja til að fylgja þeim brtt. úr hlaði, sem hv. meiri hl. sjútvn. leggur til, að farið sé inn á við afgreiðslu málsins, en vil að síðustu benda á, að hér varðar mestu það höfuðatriði, að tilganginum sé náð. Það hefur aldrei verið stigið stærra eða djarfara spor hvað snertir lánveitingar til sjávarútvegsins en gert er með frv. því, sem hér liggur fyrir, enda aldrei fyrr verið hafizt handa af jafnmiklum dugnaði og áræði til að afla landinu nýrra framleiðslutækja og nú. Ber þar margt til og þá ekki hvað sízt þeir fjármunir, sem þjóðin hefur eignazt á undanförnum árum, og sú hin yfirlýsta stefna hæstv. ríkisstj. að stuðla á allan hátt að auknum framleiðslutækjum. Því er þess að vænta, að við afgreiðslu þessa máls verði meira litið á það, að aðalmarkmiðið náist, en hitt, hvort það, sem manni þætti fara betur eða væri geðþekkara af einhverjum ástæðum, næði fram að ganga eða ekki. Fyrir mörgum vikum eða jafnvel mánuðum síðan hafa fyrirspurnir streymt að til þeirra aðila, sem forgöngu hafa um leiðbeiningar til almennings í landinu til kaupa á framleiðslutækjum í þeim efnum, sem hér um ræðir, og hafa þessar fyrirspurnir mest snúizt um það, hver tilhögun lána yrði til sjávarútvegsins. Við höfum ávallt vonað, að lausn mundi fást á því máli, og nú liggur fyrir hæstv. Alþ. — og þá fyrst og fremst á þessari stundu fyrir hv. d. — að svara þessum spurningum þjóðarinnar, spurningum þeirra manna, sem í fjöldamörgum tilfellum hafa safnað miklu hlutafé í héruðum sínum, hafa lagt fram krafta sína og eigur og eru þess albúnir að leggja nafn sitt og framtíðarafkomu að veði í von um aukna framleiðslu sjávarafurða og nýtingu þeirra í öllum efnum. — Þetta vil ég biðja hv. dm. að hafa í huga, og vona því, að þeir taki vel þessu máli og að það verði afgreitt þannig frá þessu þingi, er nú situr, að þjóðin megi vel við una.