03.04.1946
Neðri deild: 101. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1590 í B-deild Alþingistíðinda. (2802)
141. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins
Frsm. meiri hl. (Jóhann Jósefsson):
Það er ekki þannig, að ég sé að fara í kapphlaup við hv. 2. þm. S.-M., en mér þykir leitt, ef málið tefst meir en orðið er. Margir þeir, sem keypt hafa Svíþjóðarbátana, eru þegar farnir að sækja þá og þurfa á aðstoð að halda hið bráðasta.
Þeir hv. 2. þm. S.-M. og hv. 2. þm. Reykv. hafa talað mikið um þetta mál, og sé ég ekki ástæðu til að tala langt mál eða svara þeim aths., sem fram hafa komið, enda er það svo, að ég hef svipaða afstöðu um sumt, sem hefur verið fundið að, þótt ég hafi fallizt á að sveigja nokkuð af leið til að tefla málinu ekki í tvísýnu. Af þeim ástæðum hef ég fallizt á að fela hinni nýju stofnun í Landsbankanum á hendur þessa lánastarfsemi, þótt mér hefði verið geðfelldara, að fiskveiðasjóður hefði haft hana með höndum. Hitt vil ég ekki taka undir, að nokkur ástæða sé til að vantreysta Landsbankanum í þessu máli, en vitanlega er hver frjáls að sinni skoðun þar um, og hirði ég ekki um að rökstyðja það nánar að svo stöddu. En hitt hygg ég, að megi fullyrða, að mikil átök hefðu orðið um þetta mál hér innan þingsins, ef meiri hl. í sjútvn. hefði ekki sveigt til fyrir vilja fjármálastjórnarinnar um stjórn þessarar stofnunar. Ég lít svo á, að það sé svo mikilsvert atriði, að meginmálið gangi fram og lánsstofnunin komist á fót, að nokkuð sé til þess vinnandi. Enn fremur verður ekki annað séð en að við, sem sitjum í nýbyggingarráði, fáum óskir okkar uppfylltar.
Varðandi gagnrýni, sem fram kom hjá hv. frsm. minni hl. viðvíkjandi 2½% vöxtunum, get ég látið nægja að vísa til ræðu hæstv. fjmrh., og er ég í meginatriðum samþykkur þeirri yfirlýsingu, sem hann gaf. Hv. 2. þm. S.-M. hefur komið með þær sömu aths. og hann bar fram við 1. umr. Hann er ósamþykkur þeim fjáröflunarleiðum, sem farnar eru, og kannske ósamþykkur þessu öllu, þó að hann láti til leiðast. En sú fjáröflunarleið, sem hann bendir á, er nú orðin nokkuð tíð og engin fullvissa fyrir því, að þessi lánsstofnun hefði fengið nægilegt fé með því að nota þá aðferð. Einkum ber þess að gæta, að þær framkvæmdir, sem hér um ræðir, eru fjárfrekar og þola enga bið. Þess vegna er þýðingarlaust að tildra upp frv., sem ekki hefur áreiðanlegan sjóð til að byggja á. Með því að fara þá leið, hefðum við fengið frv., sem lofaði miklu á pappírnum, en yrði erfitt í framkvæmd. Þetta er fyrir þá, sem þurfa að nota þessi lán, sem hér um ræðir. Fyrst er það, að á þann hátt yrði ríkissjóður að greiða ekki litla fúlgu sem milligjöf milli vaxta, sem ætlazt er til, að teknir séu af viðskiptamönnum. Og þetta yrði að greiðast af þeim, sem vaxtabréfin keyptu, hver sem það yrði. Annars er það undarleg fullyrðing hv. 2. þm. S.-M. að halda því fram, að sú leið, sem nýbyggingarráð stakk upp á, sem sé sú, að gera Landsbankanum skylt að lána fé með ákveðnum vöxtum, væri sprottin af vantrausti á ríkisstjórninni. Þessi hv. þm. er alltaf að leita að tilefni um vantraust á þá, sem ráða hér nú. Það, sem nú kemur fram hjá þessum hv. þm., er þetta hornauga, sem hann gefur öllum framkvæmdum, sem menn hafa með höndum, og sérstaklega það, sem snertir framkvæmd hinnar yfirlýstu stefnu ríkisstjórnarinnar. Það er þetta hornauga, sem hann gefur nú þessum aðgerðum nýbyggingarráðs, þegar hann vill leggja þær út sem vantraust á hæstv. ríkisstjórn af hendi tillögumanna. Það er fjarri því, að svo sé, og verður ekki séð, á hvað grunni sú skoðun byggist hjá hv. þm. Síðast hélt hv. þm. líka því fram, að stefna hæstv. ríkisstj. væri að fæla menn frá að leggja einkafjármagn í fyrirtæki. Ég verð að halda því fram, og byggi það á talsverðri persónulegri reynslu nú síðustu mánuðina, að það er svo að sjá, sem einkafjármagnið hafi sig hreint ekki minna í frammi nú, nema síður sé, hvað viðvíkur því að afla sér framleiðslutækja, en áður var. Við sjáum það bezt á þeim mönnum, sem eiga erindi í nýbyggingarráð, að það er langt frá því, að menn séu mjög tregir til að leggja fé sitt í kaup á skipum og vélum og til þess að koma upp iðjuverum í iðnaði í mörgum greinum. Ég efast um, að nokkurn tíma hafi menn á jafnstuttum tíma á landi hér hafizt handa jafnalmennt og í jafnstórum stíl í þessu efni og nú. Hitt er svo annað mál, og þarf engan að undra, að þessar framkvæmdir kalla á meira fé en þeir, sem fyrir þeim ætla að standa og taka þátt í, hafa yfir að ráða. Þess vegna verður, eins og raun er á orðið, að telja það nauðsyn að opna mönnum leið að lánsfé í ríkara mæli en áður hefur verið. Menn ganga sannarlega að verki með talsvert meiri bjartsýni en ríkti í stjórnartíð þessa hv. þm. Svar frá hinum ráðandi stjórnarherra, sem var hv. 2. þm. S.-M., til manns, sem ætlaði af afla sér flutningaskips og gat fengið það með hlægilega lágu verði, var á þá leið, að stjórnarvöldin hefðu ekki interessu fyrir slíkum hlutum. Menn hafa á undanförnum mánuðum gengið að því með öðru hugarfari en þessu að afla skipakaupa og efla flotann. Og margir eru þeir, sem verða að leggja að veði allar eigur sínar þrátt fyrir það, þótt þeir hinir sömu hafi orðið að leita eftir lánsfé. Ég get ekki séð, að þessi almenni framfaravilji hjá þjóðinni sé vottur þess, að menn skorti yfirleitt traust á þessari ríkisstj. frekar en áður hefur verið. Það er ekkert óalgengt fyrirbæri, að menn treysti misjafnlega ríkjandi stjórnum. En þótt hv. 2. þm. S.-M. geti ekki treyst ríkjandi stjórn, þarf hann ekki endilega að leggja þannig út gerðir þeirra manna, sem að þessu frv. standa, að þeir vantreysti hæstv. ríkisstjórn. Það er einmitt þvert á móti. Sú vinna, sem nýbyggingarráð hefur lagt í þetta mál, hefur verið gerð í trausti og bjartsýni á störfum núverandi ríkisstj. og samkomulagsvilja hennar, þrátt fyrir það, þótt í einhverju kunni að greina á um leiðir til að ná þessu marki.
Hv. þm. hefur margkomið að því og lagt á það áherzlu, að með því að Landsbankinn lánaði þetta fé í þessu skyni, væri verið að ýta undir verðbólguna í landinu. Það hefur verið tekið fram til að mótmæla þessu, að það er erfitt að skilja það, að verið sé að ýta undir verðbólgu, þótt tekið sé útlent fé og keypt fyrir það togarar eða mótorbátar og byggð hraðfrystihús. Að minnsta kosti er ekki verið að búa til neina verðbólgu með því. En fjármálapólitík undanfarinna ára, og í henni á hv. þm. sinn drjúga hlut, hefur búið til verðbólgu alveg vísvitandi. Ef til vill man hv. þm. það, að þegar hann var ráðh., á árunum 1931-39, óx mjög verzlun við Þýzkaland, og reyndin varð sú, að það var orðið með beztu sölulöndum fyrir íslenzkar afurðir, jafnt sveita- og sjávarafurðir. Gerður var clearingsamningur milli landanna 1931. Þegar stríðið skall á og lokið var viðskiptum milli landanna, þá var fjarri því, að við ættum neitt hjá Þjóðverjum, en þeir áttu hjá okkur 3 millj. kr. og eiga sennilega enn part af því. Þetta er ekki þessu máli viðkomandi hugsar hv. þm. kannske, en þó — þá var fjármálapólitíkin sú undir yfirstjórn hv. 2. þm. S.-M., að ríkismörkin þýzku fengust ekki afreiknuð fyrr en þau seldust aftur. Þeir, sem seldu vörur til Þýzkalands, áttu inneign í Landsbankanum og hann hjá Deutschen Bank, en þeir fengu ekki afreiknaða sína peninga heima fyrr en Landsbankinn var búinn að selja mörkin Pétri og Páli, sem keyptu vörur til landsins fyrir þau. Um þetta er svo sem ekki nema gott eitt að segja. Þetta var varkárni á hæsta stigi í þessum efnum. Það var ekki hætta á því, að ýtt væri undir verðbólgu með þessari aðferð. En svo skeður það nokkrum árum seinna, að þessi banki afreiknar frosna peninga, fleiri tugi millj. kr. Millj. eru afreiknaðar og engar hömlur eða skorður við því settar, að seðlaflóðið fari til almennings og skapi eftirspurn eftir vörum og eignum. Svo kemur allt setuliðsféð, sem streymdi gegnum bankann. Ég veit ekki til þess, að þess sjáist neins staðar merki, hvorki meðan þessi hv. þm. var í stjórn né heldur aðrir, sem sátu, meðan þetta flóð stóð sem hæst, að reynt væri að hafa hömlur á því, að þetta fé kæmi allt í umferð. Þvert á móti, það hefur komizt í umferð og skapað mestu ringulreið og vitanlega vaxandi verðbólgu. Sama er að segja um það fé, sem bankinn hefur fengið fyrir útfluttar vörur á þessum tímum. Ekki varð ég var við, að þjóðbankinn eða þm. yfirleitt hafi reynt að reisa skorður við því, að verðbólga hlytist af þessum öra straumi peninga inn í landið á stríðsárunum. Sá straumur er hættur nú fyrir löngu og var það, þegar till. nýbyggingarráðs komu fyrir bankans augu. En þá er eins og bankinn hafi fyrst augun opin og sjái, að einhver verðbólguhætta sé framundan. Síðan hefur hv. 2. þm. S.-M. bergmálað þessa skoðun bankans gegn þeirri till. frv. að láta Landsbankann lána fiskveiðasjóði til kaupa á nýjum framleiðslutækjum eða til byggingar á þeim.
Ég hef þá lítillega drepið á helztu agnúa, sem hv. 2. þm. S.-M. finnur á þessum till. Hann flytur brtt. samkv. sinni skoðun, sem hann vill túlka hér. En ég get ekki annað en tekið undir það, sem kom fram hjá hv. 2. þm. Reykv., að það hefði verið allt of ótraustur grundvöllur til að byggja á, að ætla sér að fá lántökuna eingöngu með sölu á verðbréfum, fyrir utan nú það, að þá hlyti að koma að því, að ríkissjóður yrði að taka á sig stórar byrðar til að jafna metin. En hvað sem þessir lærðu fjármálaspekingar segja um þetta mál, þá er erfitt að fá okkur leikmennina í þjóðfélaginu til að trúa því, að það sé sérstaklega glæfralegt á þeim tímum, þegar þjóðbankinn á hundruð millj. kr. í erlendri valútu eða gjaldeyri, sem hann fær litla eða enga vexti af, að breyta innistæðunum í íslenzka seðla og lána féð Íslendingum með lágum vöxtum, en þó mun hærri en bankarnir fá í útlöndum, til þess að hrinda af stað hinum nýju átökum í framleiðslumálum þjóðarinnar, sem stjórnin hefur gerzt aðaltalsmaður fyrir. Og allir flokkar, líka sá flokkurinn, sem er í andstöðu, vildu undirbúa þetta með því að taka frá eins miklar fjárfúlgur og taldar voru nægar og á síðasta þingi lögfestar í því skyni. Ég held það hafi orðið ofan á, að það yrðu 300 þús. kr., sem lagðar skyldu til hliðar til að kaupa framleiðslutæki fyrir. Og hv. 2. þm. S.-M. veit það vel, að hans flokkur var með stórkostleg yfirboð á þessu sviði. En þegar til framkvæmdanna kom, var augljóst, að athafnamennirnir í þjóðfélaginu gátu ekki komið áformum sínum í framkvæmd nema gerðar yrðu ráðstafanir til þess, að þeir ættu aðgang að miklu meira lánsfé í þessu skyni en áður var. Þetta kom berlega fram í hverju einasta viðtali, sem menn áttu við okkur í nýbyggingarráði varðandi útvegun og fyrirgreiðslu á framleiðslutækjum. Hin eðlilega afleiðing varð svo sú, að nýbyggingarráð fór að búa til till. til að greiða úr þessari þörf landsmanna. Nú er það vitað og viðurkennt, að sjávarútvegurinn hefur búið við ákaflega erfið vaxtakjör á undanförnum árum og það var fyrir löngu orðin þörf á því að fá þeirri stefnu breytt. Þetta er eiginlega mergurinn málsins, höfuðefni þessa frv., og það nær fram að ganga, þótt það kannske verði ekki nákvæmlega í því formi, sem við höfum kosið. Ég tel það megi sætta sig við þessa afgreiðslu, þótt stofnlánadeildin en ekki fiskveiðasjóður fari með lánin.
Ég get svo að þessu sinni látið útrætt um þetta mál og beðið átekta.