03.04.1946
Neðri deild: 101. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1594 í B-deild Alþingistíðinda. (2805)

141. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins

Forseti (BG):

Ég þakka. Ég vil benda hv. þm. Vestm. á, að það skiptir ekki neinu máli, í hvaða röð málið er á dagskránni. Forseti velur málin til umr. oftast með tilliti til þess, hvort gera má ráð fyrir, að þau nái fljótt fram að ganga eða ekki eða verði langar eða stuttar umr. um þau. Þau, sem búast má við, að verði fyrir litlum töfum, eru oft tekin fyrst. Þetta mun líka hv. þm. Vestm. hafa hugmynd um, þar sem hann hefur verið alþingisforseti.