08.04.1946
Neðri deild: 104. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1761 í B-deild Alþingistíðinda. (2823)

159. mál, síldarniðursuðuverksmiðja ríkisins

Frsm. (Lúðvík Jósefsson):

Sjútvn. hefur rætt þessa till., og meiri hl. n. hallast að því, að ráðh. skipi stjórn. Það má segja, að það gæti fallið saman hjá S.R. að sjá um byggingu niðursuðuverksmiðju og stjórna henni. En störf stjórnar S.R. eru nú þegar svo mikil, að það hefur verið dregið úr störfum hennar með því að fela öðrum byggingu nýrra síldarverksmiðja. Auk þess hefur komið fram tregða hjá forstjóra S.R. og fiskifræðingurinn, sem fenginn var til aðstoðar í þessu máli, er óánægður með gang málsins, vegna þess að stjórn S.R. vill halda áfram rannsóknum, sem hann telur ekki nauðsynlegar.

Ég vænti því, að till. sjútvn. verði samþ., en til1. hv. 2. þm. S.-M. felld.