08.12.1945
Sameinað þing: 14. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 177 í B-deild Alþingistíðinda. (285)
16. mál, fjárlög 1946
Sigurður Þórðarson:
Herra forseti. Ég á hér tvær brtt. á þskj. 322, ásamt hv. 2. þm. Skagf. Önnur till. fjallar um það, að í stað 75 þús., sem í fjárlfrv. er gert ráð fyrir að veita til hafnarmannvirkja á Sauðárkróki, komi 150 þús. Þetta stendur þannig af sér, að í fyrra vetur var gerð áætlun á vitamálaskrifstofunni um hafnarframkvæmdir á Sauðárkróki fyrir um 1 millj. króna. Var þar innifalin lenging og dýpkun á hafnarsvæðinu og endurnýjun á bátabryggjunni. Að þessu var svo unnið síðast liðið sumar, og var það starf fólgið í því, að gert var við gömlu bryggjuna og byggður sandvarnargarður til þess að hefta innburð af möl og sandi í höfnina. Af óviðráðanlegum orsökum fórst fyrir, að hægt væri að dýpka höfnina, þar eð sá einasti bátur, sem vitamálastjóri hefur yfir að ráða í þessum tilgangi, varð að dvelja langdvölum norður á Dalvík við hafnarframkvæmdir þar, eins og gert hafði verið ráð fyrir og brýn nauðsyn bar til, og gat ekki unnizt tími til þess, að flytja hann til Sauðárkróks. Nú er gert ráð fyrir að halda þessum framkvæmdum áfram á Sauðárkróki næsta sumar. Dýpkun hafnarinnar þar er sérstaklega aðkallandi, þar sem stór skip fást ekki til að leggjast við hafnargarðinn, af því að svo mikið af möl og sandi hefur borizt inn í höfnina, og er nú svo komið, að Súðin getur ekki lagzt að nema um háflæði. Í fyrra voru veittar 100 þús. kr. til þessara framkvæmda, sem voru hugsaðar sem ein fjárveiting af fjórum alls. Nú er því mjög æskilegt, að veitt verði þessi sama upphæð, 100 þús. kr. í fjárl., til þess að þessar framkvæmdir geti haldið áfram.
Enn fremur hefur það komið fyrir, að af einhverri vangá hefur fallið niður í fyrra að greiða 25 þús., sem eftir sérstökum l. átti að greiða til Sauðárkrókshafnar og er skuld fyrir fyrri hafnarbætur, þegar fyrsti hafnargarðurinn var gerður. Í fyrra átti þetta að vera 11. greiðsla af 12. Nú er lagt til, að þessar greiðslur, samtals 50 þús. kr., verði teknar upp í fjárl., til þess að þessum skuldagreiðslum verði þá lokið. Vitamálastjóri hefur skrifað hv. fjvn. bréf um þetta, og ætla ég, með leyfi hæstv. forseta, að lesa upp grein úr því, sem hljóðar svo: „Enn fremur er þess að geta, að á fjárl. síðasta árs hefur sennilega fallið niður til Sauðárkróks 25 þúsund kr., sem er 11. greiðsla af 12 (1. fjárveiting 1935). Þyrfti þetta að takast upp í næstu fjárl., 50 þús. kr., sem yrði þá lokagreiðsla á nefndri fjárveitingu. Ég vona, að hv. fjvn. taki þetta til greina, af því að það hefur sennilega verið hreinasta vangá í fyrra, að þessi sérstaka greiðsla féll þá niður“.
Viðvíkjandi brtt. vegna Hofsóss er það að segja, að þar er verið að gera bryggju. Verkinu miðar fremur hægt, og hefur fjárveiting til þess verið allt of lítil. Íbúana langar nú til og fengu þeir loforð fyrir því í fyrra — að byggja þarna eitt ker til lengingar á bryggjunni um 10 m. Við förum fram á það, að fjárveiting í þessu skyni verði svo rífleg, að þetta verði unnt. Þetta síðara er ráðgert, að kosti 130 þús. kr. Við förum fram á það, að í stað 25 þús. kr. til Hofsóss, eins og gert er ráð fyrir í fjárlagafrv., komi 50 þús. kr. Það er lífsnauðsyn fyrir Hofsóskauptún og útgerð þar á staðnum, að þessi lenging fáist á hafnargarðinum, en þegar hún er fengin, verða hafnarmannvirki þar komin í sæmilegt horf. Enn fremur hefur það sýnt sig, að þar, sem Hofsá rennur til sjávar, ber hún með sér möl og sand inn á hafnarsvæðið. Staðarbúa langar því til að gera þarna sandvarnargarð. Hefur verið mælt fyrir þessu, og var uppdráttur af þessum fyrirhuguðu mannvirkjum sendur hv. fjvn. Er hér um að ræða 100 m. langan garð, sem ekki er talinn verða mjög dýr. Er talin lífsnauðsyn fyrir staðinn, að þessi garður verði byggður, til þess að hafnarmannvirkin skemmist ekki og höfnin fyllist ekki af sandi og möl. Er áætlað, að þessi varnargarður við höfnina kosti 75 þús. kr. Það er mjög þægilegt þarna að ná í grjót, og er ætlunin, að uppfylling við garðinn verði tekin ofan úr brekkunum við kauptúnið, og er jafnhlíða þessu fyrirhugað að gera þarna veg, sem nauðsynlegur er, og verði mölin úr brekkunum notuð sem uppfylling og bak við þennan garð. Er álitið, að ef sú fjárveiting nær fram að ganga, sem við förum fram á, verði hægt að nýta Hofsóshöfn miklu betur en áður, og gætu síldarskip lagt þarna upp til söltunar, þar eð síldarmið eru rétt utan við höfnina, mundi þetta veita kauptúninu mikla atvinnu. Þessi mannvirki eru mjög nauðsynleg fyrir kauptúnið, en það er yfirleitt blómlegur útgerðarbær. Af þessum ástæðum vænti ég, að litið verði á þessa nauðsyn, úr því að ekki er farið fram á hærri fjárveitingu í þessu skyni. Mér er vel kunnugt um, að víða á landinu er þörf fyrir slík mannvirki sem hér um ræðir, en efast um, að hún sé nokkurs staðar meiri en á þessum tveim stöðum, og með tilliti til þess, að upphæðirnar eru lágar, vona ég, að hv. Alþ. sjái sér fært að verða við því, sem við förum fram á.