16.04.1946
Efri deild: 108. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2029 í B-deild Alþingistíðinda. (2850)
104. mál, atvinna við siglingar
Frsm. meiri hl. (Ingvar Pálmason):
Ég skal ekki tefja umr. mikið. Ég vildi aðeins segja örfá orð til þess að reyna að sýna fram á, að það, sem okkur ber á milli, meiri hl. og hv. minni hl., er ekki eins mikið og hv. minni hl. vill vera láta. Það er óhætt að segja, að allir þeir, sem skipa hv. meiri hl., eru því mjög hlynntir, að bætt sé aðstaða við alla vélgæzlu hér á landi, og vilja einskis láta ófreistað í því efni. Það, sem á milli ber, er ekkert annað en það, hvernig á sem hagkvæmastan hátt verði bætt úr því ástandi, sem myndazt hefur við þá gerbyltingu, sem orðið hefur í fiskiflotanum, bæði að því er snertir fjölgun og vélastækkun, og virðist meiri hl. líta svo á, að sú leið, sem bent er á í frv., sé öruggari en sú leið, sem minni hl. bendir á. — Ég skal ekkert segja um það, hvað hv. frsm. minni hl. hefur fyrir sér um þau sjóslys, sem hér hafa orðið. Það er vitað, að oft hafa verið vélskaðar og kannske valdið því, að mannslíf hafi glatazt. En það er órannsakað mál, hvort þau sjóslys hafa orðið frekar hjá þeim, sem hafa verið með minni fræðslu eða meiri fræðslu. Ég vil ekki fara út í það. — Eins og ég skaut fram í fyrri framsöguræðu minni, ber ég mjög mikla virðingu fyrir faglegri þekkingu hv. þm. Barð. En það er önnur hlið á málinu, sem snýr að þessum mönnum, sem nú eru að berjast við það að auka fiskiflotann, og það er vegna þess, að ég vil taka töluvert tillit til þess, sem að þeim snýr, að ég vil heldur frv. en undanþáguleiðina. Verði undanþáguleiðin farin, höfum við dæmi fyrir okkur, að þær undanþágur byggjast venjulega á lærdómi, ekki eins mikið á reynslu. A. m. k. hefur það viljað verða svo.
Ég held, eins og ég sagði í framsöguræðu minni, að orðaskak milli hv. frsm. minni hl. og mín hafi ekki mikla þýðingu. Ég skil hans afstöðu ofur vel og met hana mikils. Og að því er snertir endurskoðun á l., þá get ég lýst yfir því fyrir mína hönd, og að ég held meiri hl. n., að við erum fúsir til þess, að því verði breytt.
Það er eitt atriði, sem ég vil minnast á, sem hv. frsm. minni hl. benti á til stuðnings máli sínu, það, að ríkisstj. setti á fót skyndinámskeið og gæti með því leyst úr þeim vandræðum, sem hér steðja að. Í frv. er gert ráð fyrir einmitt slíkum námskeiðum. En ég skal játa, að ég hefði gjarnan viljað hafa þau ákvæði nokkuð ákveðnari, ríkisstjórnin heimili að setja á stofn slíkt námskeið. Ég hef talað við mann, sem er mjög nákominn hæstv. atvmrh., og hann hefur sagt við mig, að enginn vafi væri á því, að byrjað yrði að koma á þessum námskeiðum eins fljótt og kostur væri á. Ég álít þetta að vísu ekki fullnægjandi, en þó nokkra úrbót, og er ég hv. þm. Barð. um það fyllilega sammála, að það beri að gera allt, sem mögulegt er, til að auka hina faglegu þekkingu þessara manna.
Ég sé svo ekki ástæðu til að fara inn á fleiri atriði. Ég er hv. frsm. minni hl. að ýmsu leyti sammála, en það, sem á milli ber, er bara þetta, hvernig verði ráðið fram úr þeim erfiðleikum, sem nú hafa skapazt, og úr því verður svo hv. d. að skera. Ég byggi töluvert á hinni almennu dómgreind manna. Og þó að það sé alltaf gott að hafa fagþekkingu, þar sem henni verður komið við, verð ég að segja, að flest mál eru þess eðlis, að við þm. verðum að byggja á dómgreind okkar sjálfra. Vænti ég þess fyllilega, að frv. verði samþ. En verði það ekki, vil ég segja það, að ég hef þá trú á hv. frsm. minni hl., að hann muni gera sitt til þess, að það gæti orðið að notum, þó að þetta, því miður, heyri ekki undir hann.