16.04.1946
Efri deild: 108. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2030 í B-deild Alþingistíðinda. (2852)

104. mál, atvinna við siglingar

Frsm. minni hl. (Gísli Jónsson) :

Það voru aðeins örfá orð. Það er ekki ástæða til að vera að neinu þófi, enda fyrst og fremst engir til að hlusta á neinar skýringar aðrir en þeir, sem hafa með málið að gera í sjútvn. Ég hef enga löngun til þess að fara út í nokkurt pex við hv. frsm. Hann hefur viljað sýna málinu fullan skilning í meðferð, en okkur greinir á um aðferðir. Ég vil bara benda á, að reginmunurinn liggur í því, að hann vill, að með þessum l. séu veitt réttindi til fjölda margra manna; sem ekki er hægt að stöðva, eftir að búið er að veita þau. Ég hins vegar vil takmarka þetta með því, að þetta sé veitt með undanþágu til þeirra manna, sem beztir eru í þessum hóp, og á sama tíma verði byggð upp námskeið, en um það erum við sammála, hv. 1. þm. S.-M. og ég. Ég hygg, að ef mín aðferð yrði viðhöfð, væri fyrirbyggt það, sem gæti orðið málinu til ills, en ekki stöðvað það, sem gæti orðið málinu til góðs. — Með því að sjútvn. Nd. hefur sent þessi gögn til mín, eftir að nál. var gefið út, vildi ég mælast til þess við hæstv. forseta, — og þess vegna stóð ég upp, — að þessari umr. verði frestað og ekki gengið til atkv. nú, en sjútvn. beggja d. reyni að bræða sig saman með samræðum við ráðherra um lausn á þessu máli, sem heldur ekki er fengin í Nd., og vil ég benda á það, að málið heyrir ekki undir atvmrh., heldur undir samgmrh., a. m. k. allt varðandi námskeiðið og skólann heyrir undir hann. Ég vildi sem form. sjútvn. Ed. ræða málið við formann sjútvn. Nd., í samráði við bæði hæstv. atvmrh. og hæstv, samgmrh., og sjá, hvort ekki sé unnt að finna leið í þessu máli, sem allir megi vel við una. Þetta eru, sem sagt, tilmæli mín til hæstv. forseta, og skal ég svo ekki taka aftur til máls.