17.04.1946
Efri deild: 110. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2046 í B-deild Alþingistíðinda. (2885)

31. mál, menntaskólar

Frsm. (Ásmundur Sigurðsson) :

Herra forseti. Ég ætla ekki að deila um það, hvar þessi menntaskóli ætti að vera í Reykjavík, ég skal gjarnan koma fyrirspurn hv. 6. þm. Reykv. til hæstv. menntmrh., svo framarlega sem hann mætir hér. — Annars get ég aðeins tekið það fram, að ég lít svo á, hvað snertir möguleika nemenda til að sækja skóla, að það mætti segja nokkuð svipað um háskólann, hann er settur utanvert við bæinn, svo að þess vegna er ekki ástæða til að setja inn þau ákvæði, að þessi skóli verði byggður þar, sem núverandi skóli er, frekar en einhvers staðar annars staðar. — En hvað viðvíkur því, sem hann gat um, að þetta mál væri til þess að tefja önnur mál, sem samið hefði verið um, þá skal ég taka það fram, að það mun vera samkomulag um, að hin stóru mál nái fram að ganga, og þetta er eitt af þeim málum, sem þarf að afgreiða. Í öðru lagi benti ég á það í framsöguræðu, að þegar verið er að skapa heildarskólakerfi, þá er tæplega vansalaust að sleppa menntaskólunum, þar sem svo hagar til, að það er ósamræmi í þeim l. og reglugerðum, sem þeir eiga að starfa eftir, og þeir geta ekki starfað eftir þeim, eins og þær eru nú.