17.04.1946
Efri deild: 110. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2047 í B-deild Alþingistíðinda. (2891)

31. mál, menntaskólar

Frsm. (Ásmundur Sigurðsson) :

Ég bendi á skv. ákveðinni ósk frá hv. 6. þm. Reykv., að ég hef fengið upplýsingar um, að meiri hl. bæjarráðs Reykjavíkur sé búinn að samþ. ákveðinn stað fyrir menntaskólann. Það þurfti því eigi að gera þessa fyrirspurn. Er hún frekar til tafar. — Hvað viðvíkur fullyrðingunum um, að hér sé ekki um samningsmál að ræða, þá mun úr því fást skorið utan þingfunda. En flestir munu, ef gert samkomulag verður rofið, kippa að sér hendinni um málið. — Ég hef svo ekki meira um þetta að segja.