23.04.1946
Efri deild: 111. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1773 í B-deild Alþingistíðinda. (2934)

159. mál, síldarniðursuðuverksmiðja ríkisins

Frsm. (Steingrímur Aðalsteinsson) :

Herra forseti. Þó að vitnað sé í áætlun þá, er fyrir liggur í þessu máli, þá hef ég ekki þá þekkingu að geta dæmt um útreikninginn, en áaatlanirnar liggja þó fyrir og ég geri ráð fyrir, að þær séu eins nákvæmar og kostur er á og að dr. Jakob Sigurðsson hafi byggt þær á góðum gögnum. Hins vegar er mér ljóst, að ýmislegt gæti komið fyrir, sem raskar, en þessa áætlun verður þó að leggja fram fyrir grundvöll.

Þrátt fyrir aths. sínar hefur hv. þm. Barð. lýst yfir fylgi sínu við frv., og aðrir nm., sem á fundi voru, hafa gert slíkt hið sama, en hv. 1. þm. S.-M. mætti ekki á fundi, eða það náðist ekki í hann. En aðrir nm. hafa mælt með þessu frv., og vænti ég, að það verði samþ.