23.04.1946
Efri deild: 111. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1773 í B-deild Alþingistíðinda. (2935)

159. mál, síldarniðursuðuverksmiðja ríkisins

Ingvar Pálmason:

Herra forseti. Ég átti, eins og hv. frsm. sagði, ekki kost á að mæta á fundi, þegar þetta var rætt. Ég efa ekki, að hér er um merkilegt mál að ræða, en hins vegar tel ég það tæplega nógu vel undirbúið, og teldi ég nauðsyn á að fara varlega. En ég mun ekki setja fót fyrir málið að sinni, en tel rétt að setja ekki óþarflega mikið bákn af stað til að byrja með, og einnig hefði ég kosið, að stjórnin hefði verið skipuð á annan hátt, og hygg ég, að hægt hefði verið að hafa þetta ódýrara, og á ég þar við, að þetta fyrirtæki væri rekið í sambandi við Síldarverksmiðjur ríkisins. Ég hygg, að það mundi bæði spara mannahald og byggingar, ef þetta væri meira í sambandi við Síldarverksmiðjur ríkisins.

Ég mun greiða frv. atkvæði til 3. umr., en áskilja mér rétt til að flytja brtt. við 3. umr.