15.04.1946
Neðri deild: 111. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1814 í B-deild Alþingistíðinda. (2967)

194. mál, útflutningur á afurðum bátaútvegsins

Atvmrh. (Áki Jakobsson) :

Herra forseti. Frv. þetta hefur nú legið nokkru lengur í n. en ástæða hefði verið til, og liggur að vísu ekki fyrir frá n. nál. En það var nú allmikið rætt hér við 1. umr., og komu þá fram ýmsar brtt., þannig að það fékk í raun og veru við 1. umr. þá meðferð, sem mál venjulega fá við 2. umr.

Ég flyt hér á þskj. 849 brtt., sem ríkisstj. stendur að. Þetta mál hefur verið rætt við Landssamband íslenzkra útvegsmanna og Sölusamband frystihúsanna. Þegar þessar ábyrgðir voru veittar, hafði ríkisstj. aflað fylgis við málið hjá stuðningsflokkum sínurri á Alþ., og var þessi ábyrgð veitt í því skyni, að ekki færi svo, að vertið kæmist ekki af stað vegna þessarar óvissu, sem ríkjandi var um sölu afurða bátaútvegsins. Þegar þessar ábyrgðir voru fyrst veittar, var engin vitneskja fyrir sölu, hvorki á hraðfrystum fiski né saltfiski. Eina vitneskjan var um ísfiskmarkaðinn í Englandi. Þar seldist allt af þeirri vöru, sem komst óskemmt á markaðinn, og fyrir hámarksverð. En nokkurt hik var þá á hraðfrystihúsaeigendum um að hefja rekstur sinna frystihúsa, og enn fremur töldu menn óheppilegt að salta fisk, vegna þess að ekkert var vitað um verð, sem íslenzkir fiskimenn teldu nægilega hátt fyrir þá vöru, til þess að hægt væri að greiða það verð, sem ríkisstj. taldi nauðsynlegt, að greitt væri fyrir fiskinn til fiskimanna. Þegar sú ákvörðun var tekin að hækka um 5 aura fiskverðið á þorski og ýsu, þótti þess vegna óhjákvæmilegt að gera þessar ráðstafanir. — Nú hafa atvikin snúizt þannig, að búið er að selja allmikið af hraðfrysta fiskinum fyrir nokkuð mikið hærra verð en búizt hafði verið við í upphafi, og má heita, að góðar horfur séu um sölu alls hraðfrysta fisksins fyrir sama verð, þ. e. 121 eyri á hvert enskt pund. Þá hefur verið gengið frá sölu til Frakklands fyrir sem svarar kr. 1,21 pr. enskt pund. Salan til Ameríku er nokkru hærri, en flutningskostnaður meiri, og veldur það því, að búizt er við lakari útkomu úr þeim viðskiptum. Ef svo færi, að verðið yrði meira en þessi hækkun nemur, tel ég óeðlilegt, að sú hækkun færi til hraðfrystihúsanna eingöngu, álit, að fiskimenn og útvegsmenn fái sinn hlut. — Þetta liggur fyrir í brtt. á þskj. 849. Þar er gert ráð fyrir, að ef meira verð fæst en kr. 1,10, þá skuli það, sem er umfram 2½ eyri af pundi, skiptast jafnt á milli útvegsmanna og hraðfrystihúsanna og verði verðjöfnunarsvæði ákveðin. Það, sem ekki kemur til skipta af því, sem er umfram kr. 1,10, er ætlað til að mæta þeirri áhættu, sem ríkissjóður tekur á sig, í fyrsta lagi vegna áhættu á hraðfrysta fiskinum, í öðru lagi vegna áhættu á saltfiskinum, í þriðja lagi þegar vörur eru seldar til útlanda gegn greiðslufresti og í fjórða lagi vegna áhættu í sambandi við fiskflutninga.

Þá er 2. till., þar sem óskað er eftir heimild til þess að ríkisstj. megi taka allt að 20 fiskflutningaskip á leigu í lok maí. Ef fiskverðið lækkar á enskum markaði, má búast við, að meira berist á land hér af fiski og áhættan því meiri.

3. brtt. er um það, að í stað 5000 tonna ábyrgðar af saltfiski komi 7 þús. tonna ábyrgð. Það þótti rétt að fara fram á hækkun á þessari ábyrgð, en hins vegar eru miklar líkur til, að allur saltfiskur seljist fyrir það verð, sem óskað hefur verið, að ríkissjóður ábyrgðist. Framleiðslan mun nú vera um 2800 tonn, og af því hafa þegar verið seld 2 þús. tonn. Það þarf varla að gera ráð fyrir, að aflinn verði meiri en 7 þús. tonn, en þrátt fyrir að góð von sé með þetta umrædda verð, má gera ráð fyrir, að nokkuð verði að selja gegn greiðslufresti, og þess vegna æskilegt að fá ábyrgð ríkissjóðs.

Það hefur komið fram till. um að setja í frv. ákvæði um, að menn legðu fram sönnunargögn, að þeir hefðu greitt sjómönnunum ákveðið verð. Ég tel ekki ástæðu til að setja þetta í frv., því að óhjákvæmilegt er að setja slíkt í reglugerð, og legg ég því til, að þessi till. verði dregin til baka.

Þá hef ég skýrt frá aðalatriðum frv. og læt því staðar numið að sinni.