17.04.1946
Neðri deild: 113. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1825 í B-deild Alþingistíðinda. (2989)

194. mál, útflutningur á afurðum bátaútvegsins

Eysteinn Jónsson:

Ég flutti brtt. við 2. umr., sem er svo hljóðandi:

„Ríkisstjórninni er heimilt fyrir hönd ríkissjóðs að kaupa til útflutnings eða ábyrgjast fyrir bátaútveginn sölu á því fiskmagni, sem saltað er til útflutnings á tímabilinu frá 1. jan. til 31. okt. 1946, fyrir það verð, að kr. 1.70 fáist fyrir hvert kílógramm af fullsöltuðum og fullstöðnum stórfiski I. flokks og tilsvarandi verð fyrir annan fisk að dómi ríkisstjórnarinnar.“

Ég flutti þetta, því að ég skildi það sem svo, að ekki væri heimilt að kaupa neitt nema stórfisk. Þetta getur orkað tvímælis, en 2. gr. er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta :

„Ríkisstjórninni er heimilt fyrir hönd ríkissjóðs að kaupa til útflutnings eða ábyrgjast sölu á allt að 5000 tonnum af saltfiski fyrir bátaútveginn, er miðist við kr. 1.70 hvert kílógramm af fullsöltuðum og fullstöðnum stórfiski (þorski) I. flokks.“

Ég vil benda á, að heimilt er að kaupa allan saltaðan fisk, en grundvöllurinn er kr. 1.70 á kg af stórfiski. Það sjá allir, að nauðsynlegt er, að þessi heimild sé ekki einskorðuð við stórfisk, og væri því rétt að setja tilsvarandi verð á aðrar tegundir. En ef ríkisstj. hefur þennan skilning á þessu, þá er till. mín ekki nauðsynleg. — Er það meining ríkisstj. að þegja um þetta? Ég mun þá flytja skrifi. brtt. um, að aftan við 2. gr. bætist: og tilsvarandi verð fyrir annan fisk, að dómi ríkisstjórnarinnar.