17.04.1946
Neðri deild: 113. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1827 í B-deild Alþingistíðinda. (2997)

194. mál, útflutningur á afurðum bátaútvegsins

Fjmrh. (Pétur Magnússon) :

Ég vil láta það koma fram, að ástæðan til þess, að ég fellst á frv. þetta, er sú ein, að ríkissjóði eru hér ekki bundnir baggar. — Um saltfiskinn er það að segja, að líkur eru á, að hann seljist fyrir gott verð. Meiri vafi er á því en vonir, að meðalverðið verði svo hátt, að ríkissjóður þurfi eigi að verða fyrir áföllum af þeim sökum. Ég vildi ekki fallast á þetta, nema hraðfrystihúsin gengju inn á að bera skakkaföllin með. Hins vegar munu hv. þm. sammála um, að ekki sé hægt að binda ríkissjóð.