25.02.1946
Efri deild: 71. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1856 í B-deild Alþingistíðinda. (3067)

30. mál, gagnfræðanám

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég hafði ekki hugsað mér að ræða þetta mál við þessa umr., en vegna ummæla hæstv. ráðh., að hægt væri að gleypa þetta sökum góðs undirbúnings, þá vil ég benda á fáein atriði, sem ég hef rekizt á, sem benda til, að málið hafi ekki fengið nægilegan undirbúning. Í 13. gr. stendur, að „heimilisfaðir unglings, sem skylt er að stunda gagnfræðanám, ber ábyrgð á, að hann hljóti lögboðna fræðslu og sæki lögskipuð próf.“ — Það er ekkert tillit til þess tekið, þótt hann hafi ekki aðstæður til að uppfylla þessar skyldur. Í 2. málsgr. 14. gr. stendur á einum stað „leggist“, en á sennilega að vera lagist, og hefur þetta farið framhjá þessum mönnum. Mér skilst eftir þessari gr., að börnin sjálf eigi að borga sektirnar, 5–10 kr. á dag. Nei, mig grunar, að málið hafi fengið lélega meðferð í Nd. Og ég vil spyrja hæstv. ráðh., hvað yrði mikið af unglingum, sem yrði að vista utan heimilis, ef fara á eftir þessum ákvæðum 14. gr. Ummæli þessi markast ekki af andúð minni á frv. Mér er kunnugt um það um þessa nefnd, að í öðru máli, þá týndi hún öllum gögnum í málinu. — Ég vil láta þessi 3 frv. fylgjast að, hafa allan þennan lagabálk í einu frv. Og ég vil spyrja hæstv. ráðh., hvort hann vill ekki hlutast til um, að þingmál 28 og 29 yrðu geymd, og gera þá breyt., að þetta yrði sett í eitt frv. Hitt er svo annað mál, að þjóðinni er nauðsynlegt að mennta unglinga sína. En það er ekki nóg að ákveða, að barnið skuli verða menntamaður, og það má ekki vera á valdi skólanefnda að útskrifa börnin 16 ára eða að stimpla þau illa. Og það er undarlegt, að sami ráðh., sem ekki gat fengið nægilega fjárveitingu til barnafræðslu, skuli nú koma með þetta kerfi, sem kostar of fjár og er engu betra en hið fyrra.