25.02.1946
Efri deild: 71. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1859 í B-deild Alþingistíðinda. (3071)
30. mál, gagnfræðanám
Bjarni Benediktsson:
Hv. þm. S.-Þ. beindi til mín fyrirspurn, sem ég tel þó, að mér beri ekki skylda til að svara, og get það raunar ekki, þar sem hæstv. menntmrh. gat ekki svarað því, hve marga skóla mundi þurfa að reisa. Hins vegar tel ég, að ekki ætti að þurfa að vera ágreiningur um það, að æskilegt er, að sem flestir fái aðstöðu til þess að njóta menntunar.
Ég geri ráð fyrir, að frv. sé í aðalatriðum gott og miði í rétta átt, þótt einstök atriði mættu betur fara, og ég get ekki tekið undir það með hv. þm. S.-Þ., að mþn. í skólamálum hafi ekki haft góðum mönnum á að skipa. Vil ég t. d. benda á mann eins og Ásmund Guðmundsson, sem mér er kunnugt um, að er bæði duglegur og reyndur í þessum málum. Enn fremur má til nefna Kristin Ármannsson, sem einnig er viðurkenndur dugnaðarmaður. Aftur á móti vil ég ekki fallast á, að ég og hv. þm. Barð. megum ekki beita okkar litlu greind í þessu máli, því að þótt ég hafi álit á þessum mönnum, sem sæti áttu í mþn., vil ég ekki gefa upp alla gagnrýni á gerðir þeirrar n. eða samþ. án athugunar till. hennar. Hæstv. ráðh. sagði hér áðan, að ákvæðið í 10. gr. væri gamalt, en sannleikurinn er sá, að hið eldra ákvæði er allt annað. Í niðurlagi 10. gr. frv. segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Verði ágreiningur milli sveitarstjórnar og skólanefndar um fjárframlög til skólahalds, sker fræðslumálastjórn úr.“ — Í gamla ákvæðinu, sem hæstv. ráðh. vísaði til, hljóðar þetta upp á ágreining, sem verða kynni milli sveitarstjórnar og fræðsluráðs. Nú er það kunnugt, að skólanefndir og fræðsluráð hafa ekkert fjárveitingarvald, það hafa sveitarstjórnir og bæjarstjórnir. En eins og fyrri skipan þessara mála var, var það tryggt, að sveitarstjórn eða bæjarstjórn hafði sams konar meiri hluta og fræðsluráð, en um það er ekki að ræða samkv. þessu nýja fyrirkomulagi. Þess vegna er hér um að ræða nýtt og ólíkt ákvæði. Þetta veit ég, að hæstv. menntmrh. sér. Þá segir enn fremur, að skólanefndir eigi að sjá um, að fullnægjandi húsnæði sé fyrir hendi til lögboðins skólahalds. Eins og þetta er nú í frv., getur skólanefnd ákveðið, hve mikið fé skal lagt fram til skólabygginga, og ef bæjarstjórn fellst ekki á þær till., getur viðkomandi ráðh. veitt upphæðir úr bæjarsjóði í þessu skyni. En það getur hann ekki eftir núv. lögum.
Hitt er einnig rangt, að ríkissjóður greiði nú meir en áður til þessara skóla. Ríkið greiddi áður 2/5 stofnkostnaðar við þá skóla, sem nú er gert ráð fyrir, að það greiði ½, en aftur á móti er lægra tillagið til húsmæðraskólanna, var áður ¾ kostnaðar, en á nú ekki að vera nema ½. (Menntmrh.: Hér er átt við kvennaskóla, en ekki húsmæðraskóla.) Ég hugsaði, að hér væri átt við húsmæðraskóla, en það er þá ókomið frv. um þá, en þangað til það kemur nær þetta til húsmæðraskóla og eru ekki fríðindi frá því, sem áður var. Þessi atriði, sem ég nú hef drepið á, skerða ekki frv. í heild, en þau eru til athugunar fyrir n., og vænti ég, að hún taki þessar bendingar til greina.