16.04.1946
Efri deild: 108. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1867 í B-deild Alþingistíðinda. (3083)

30. mál, gagnfræðanám

Frsm. (Magnús Jónsson) :

Eins og tekið er fram í nál., þá áskil ég mér rétt til að fylgja brtt., sem fram kunna að koma. — Varðandi brtt., sem fram hefur komið við 10. gr., vil ég taka það fram, að ég mun greiða atkv. með þeirri brtt. Hins vegar hef ég ekki ákveðið afstöðu mína til ákvæðisins um orlof kennara. En ég hef haldið því fram, að þetta ætti að vera í reglugerð, en ekki í l. Ég viðurkenni, að þetta er rausn, hvort sem það er nú ofrausn eða ekki.

Um brtt. hv. 3. landsk. vil ég taka það fram, að ég er henni mótfallinn, þar sem ég tel, að hún þýði í raun og veru fjölgun kennara um 10%. Annars verða atkv. að skera úr um þetta.