17.04.1946
Efri deild: 110. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1868 í B-deild Alþingistíðinda. (3086)
30. mál, gagnfræðanám
Þorsteinn Þorsteinsson:
Það er komið að því, að þetta frv. fari að kveðja þingið, en ég hef ekki haft tækifæri til þess að athuga það nógu vel. Ég vil aðeins segja örfá orð um eitt atriði, sem hefur gengið hér í gegn og kemur víða við. Það er orðalagsatriði í 39. gr. frv. Það hefur ekki verið tíðkað að veita orlof embættismönnum ríkisins úr embætti nema undir sérstökum atvikum, eða þá að heilbrigðisástæður væru fyrir hendi. Nú sýnist þetta vera farið að breytast og er nokkuð í samræmi við það, sem aðrir starfsmenn fá. En þegar verkafólk og starfsfólk yfirleitt fékk sitt orlof, var reynt að hafa samræmi milli allra aðila um það, að þeir fengju jafnt orlof. Nú virðist, ef á að hverfa að því, að þessir menn standi undir launal., nauðsynlegt að gefa út löggjöf um það, hvernig því orlofi skuli háttað. Nú virðist mér tekin sú stefna að veita sérstakt orlof, því að það á að vera tíunda hvert ár, sem kennarar eiga að fá þessi orlof, það er byrjað á þeirri stéttinni, sem hefur orlof 4–6 mánuði af hverju ári, því að kennslutími þeirra er oft 6–8 mánuðir. Ég verð að segja það, að ég tel það það fyllsta að láta þessa menn fá einu sinni orlof á ævinni, ef sérstaklega er mælt með því. Það var á síðustu stundu horfið frá því í barnafræðslul. að hafa það þannig, að kennarar fengju orlof tíunda hvert ár, heldur var þeim veitt það aðeins einu sinni á ævinni, og þeir urðu þá að vera búnir að vera í embætti í 10 ár. Þess vegna hef ég leyft mér að bera fram brtt. í samræmi við það, sem hv. d. hefur samþ. í fræðslul. um barnakennara, og hún er á þá leið, að þegar kennarar hafa gegnt embætti í 10 ár, þá hafi þeir einu sinni rétt til orlofs frá kennslu með fullum launum, í staðinn fyrir það, að ekki er talað um, að þeir eigi að fá orlof einu sinni, heldur síðan 10. hvert ár, og í samræmi við það, að í staðinn fyrir „orlofsárin“ komi: orlofsár. Ég vil svo leyfa mér að afhenda hæstv. forseta þessa brtt.