17.04.1946
Efri deild: 110. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1870 í B-deild Alþingistíðinda. (3091)

30. mál, gagnfræðanám

Gísli Jónsson:

Það er nú ljóst orðið, að hæstv. forseti hefur tekið á dagskrá mál, sem ekki hefur hlotið fullkomlega athugun og hefur jafnvel ekki verið samið um. Ég bar hér fram við annað mál brtt. svipaðs efnis og hv. 1. þm. S.-M. ber fram nú, en sú till. var felld. Nú veit ég ekki, hvort hv. 1. þm. S.-M. var fylgjandi þessari till., en þar sem ég taldi, að búið væri að marka stefnuna í þessum málum, flutti ég ekki brtt. við þetta frv. Ég benti þá á þær upplýsingar, sem liggja fyrir varðandi skipun skólastjóra við gagnfræðaskólann á Akranesi, og sýndi fram á, hvað af því mætti læra.

Þá vil ég taka það fram, að ég tel eðlilegt, að skólanefndirnar geti ráðið nokkru um val þeirra manna, sem foreldrar fá börn sín í hendur, og ég undrast, að háskólaprófessor skuli láta skína hér í það, að foreldrum komi það ekkert við, hvort börn þeirra eru alin upp t. d. í hinu austræna lýðræði, enda er það svo, að í raun og veru eru það foreldrarnir, gjaldendurnir, sem greiða laun kennaranna, ríkið er þar ekkert annað en milliliður. Þess vegna er ekki eðlilegt, að ráðh. hafi hér úrslitavald. Af þessum ástæðum mun ég fylgja brtt. hv. 1. þm. S.-M.

Varðandi orlof kennara vil ég segja það, að ég tel ekkert vit í því að ákveða slíkt af handahófi nú, slík ákvæði eiga heima í lögum um réttindi og skyldur embættismanna, og virðist nú vera að rofa til um skilning manna á þessu.

Ég sé, að í þessu frv. er gert ráð fyrir 30 stunda kennslu á viku á hvern kennara, en hv. 1. þm. Reykv. upplýsti í gær, að í húsmæðraskólunum væri gert ráð fyrir 36 stunda kennsluviku, og er það mátuleg rassskelling á kennarastéttina, að kvenfólkið skuli reynast úthaldsbetra og afkastameira. En þótt þetta mál nái nú fram að ganga með öllum sínum vitleysum, þá er það víst, að ekki verður hætt fyrr en komið verður í veg fyrir það ranglæti, sem þessi frv. skapa.