06.03.1946
Neðri deild: 81. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1881 í B-deild Alþingistíðinda. (3118)

107. mál, húsmæðrafræðsla

Sigfús Sigurhjartarson:

Herra forseti. Frsm. menntmn., hv. þm. Snæf., hefur leyfi frá störfum í dag og hefur farið þess á leit við mig, að ég gerði grein fyrir brtt. menntmn. Þykir mér rétt að verða við þessu, ef það mætti greiða fyrir gangi þessa máls og þingstörfum. — Eins og fram er tekið á þskj. 482, hefur menntmn., eftir að hafa rætt þetta mál á nokkrum fundum, orðið sammála um að mæla með framgangi þess með þeim breyt., sem prentaðar eru á þskj. 494. Einn nm., hv. þm. A.-Sk., hefur þó skrifað undir nál. með fyrirvara, og kemur það í ljós með brtt., sem hann ber fram á þskj. 502, hvað í þeim fyrirvara felst.

Um brtt. þær, sem n. leggur til, er þetta að segja: Fyrsta brtt. er við 2. gr., að í stað orðanna „gagnfræðaráðs eða gagnfræðaráða“ komi: fræðsluráðs eða fræðsluráða. Þetta er til samræmis við þær breyt., sem áður hafa verið gerðar á frv. til l. um gagnfræðanám, en eins og hv. þm. vita, hafa þar verið niður felld orðin: „gagnfræðaráðs eða gagnfræðaráða“, en í staðinn innfærð orðin „fræðsluráðs eða fræðsluráða“, m. ö. o. að það hefur verið hallazt að því ráði að hafa yfirstjórn þessara mála í höndum þeirra aðila, sem hafa með höndum yfirstjórn barnafræðslu, en það er fræðsluráð.

Þá er það önnur breyt. við 2. gr., að á eftir 1. tölul. komi nýr töluliður, svo hljóðandi: „Umsögn hlutaðeigandi kvenfélagasambands eða sambanda“. Með öðrum orðum, það þarf þessi skilyrði til að stofna húsmæðraskóla:

1. Till. hlutaðeigandi fræðsluráðs eða fræðsluráða, þar sem jafnframt sé bent á skólastað.

2. Umsögn hlutaðeigandi kvenfélagasambands eða sambanda.

3. Samþykki hlutaðeigandi kaupstaðar, sýslufélags eða sýslufélaga.

4. Samþykki fræðslumálastjórnar á skólastað og uppdrætti að skólahúsi.

5. Fjárveiting Alþ. til stofnunar skólans.

Þá hefur n. lagt til, að á 7. gr. frv. verði þær breyt., að á eftir orðunum „tekju- og eignarskatts íbúanna“ í 1. mgr. komi : eftir meðaltali 5 síðustu ára. — Þetta er í samræmi við þá breyt., sem gerð var á frv. um gagnfræðanám. — N. leggur til, að 8. gr. falli alveg burt. Þessa gr. taldi n. alveg óþarfa, því að ef um leiguhúsnæði væri að ræða, yrði sá leigukostnaður talinn með öðrum rekstrarkostnaði. — Við 9. gr. leggur n. til þær breyt., að hún verði orðuð um þannig: Fastir kennarar við húsmæðraskóla eru embættismenn ríkisins og taka laun úr ríkissjóði samkvæmt launalögum. Ríkissjóður greiðir einnig styrk til stundakennslu samkv. 10. gr. Annar rekstrarkostnaður greiðist úr skólasjóði. Tekjur skólasjóðs eru: húsaleiga, tekjur af eignum skólans og tekjur af ýmiss konar starfrækslu, sem rekin er í því skyni að afla skólanum tekna. Að svo miklu leyti sem þessar tekjur hrökkva ekki fyrir gjöldum skólasjóðs, greiða hlutaðeigandi sveitarfélög sjóðnum helming þess, sem á vantar, eftir sömu reglum og stofnkostnaður er greiddur, en ríkissjóður greiðir hinn helminginn. — Þetta ákvæði er hliðstætt því, sem d. ákvað um gagnfræðanámsfrv. Við 10. gr. bætir n. aðeins við nánari ákvæðum um greiðslu til stundakennara. — Við 13. gr. leggur n. til orðabreyt., sem skipta að vísu ekki miklu máli. Aðalbreyt. er, að n. leggur til, að ákvæði þessarar gr. nái ekki til þeirra, er skipa fastar stöður við húsmæðraskóla, þegar lög þessi koma til framkvæmda. — Þá leggur n. til, að 15. gr. falli niður. Það er í samræmi við þá breyt., sem d. gerði á frv. um gagnfræðanám. Gr. mun líka óþörf, því að sömu l. gilda um flutning kennara milli embætta og annarra starfsmanna hins opinbera. – Breyt., sem n. leggur til að gerð verði á 16. gr., um orlof, er í samræmi við þá breyt., sem gerð var á þessu ákvæði í frv. um gagnfræðanám. — Í 17. gr. frv. er gert ráð fyrir, að inntökuskilyrði í húsmæðraskóla verði miðuð við 18 ára aldur. Um þetta atriði varð nokkur ágreiningur í n. Úrslit urðu þau, að n. leggur til, að þetta aldurstakmark verði fært niður í 17 ára, enn fremur, að í stað „unglingaprófi“ komi: skyldunámi. Þá leggur n. til, að sú breyt. verði á 18. gr., að í stað orðanna „fjölga kennslugreinum“ komi: fjölga og fækka kennslugreinum. N. þótti eðlilegra að gera frv. þannig úr garði, að hægt væri að fjölga eða fækka kennslugreinum án þess að til þess þyrfti lagabreyt. — Brtt. n. við 20. gr. 2. málsgr. orðist svo : Heimilt er að ráða einn námsstjóra til leiðbeiningar og eftirlits með skólunum. — Þetta er í samræmi við breyt. á frv. um gagnfræðanám. — Þá leggur n. til, að 22. gr. frv. falli niður, þar sem það atriði felst í 5. gr. frv. og telst því óþarft eins og það kemur fram í 22. gr.

Ég sé þá ekki ástæðu til að ræða þessar brtt. n. frekar. En varðandi brtt. hv. þm. A.-Sk. á þskj. 502, um að fela skólanefnd veitingavald, þá tel ég það fjarstæðu, þar sem um embættismenn ríkisins er að ræða. Ég gerði grein fyrir þeirri afstöðu minni við frv. um gagnfræðanám og tel því óþarft að tefja umræður með því að endurtaka það nú. — Um hina brtt. á þskj. 502 skal ég taka það fram, að ég tel hana vera meinlausa.

Ég skal fyrir hönd n. taka það fram, að hún. er reiðubúin að taka þær brtt. og leiðbeiningar, sem fram kunna að koma við þessa umr., til athugunar milli 2. og 3. umr., ef þess verður óskað.